Vera


Vera - 01.04.2003, Qupperneq 6

Vera - 01.04.2003, Qupperneq 6
/ ASKRIFANDINN NAFN: HANNA JÓNSDÓTTIR ALDUR: 59 ÁRA STARF: LJÓSMÓÐIR ÁHUGAMÁL: ÚTIVIST, FERÐALÖG, LESTUR GÓÐRA BÓKA OG JAFNRÉTTISMÁL HVE LENGI ÁSKRIFANDI: FRÁ UPPHAFI HVERNIG FINNST ÞÉR VERA? MJÖG GOTT BLAÐ Hanna útskrifaðist sem Ijósmóðir árið 1968 og vann fyrst á Land- spítalanum en bjó síðan í Noregi í tvö ár og segist hafa tekið á móti yfir 100 norskum börnum. Eftir að þau fluttu heim hefur hún unnið á heilsugæslustöðvum bæði við mæðraskoðun og ungbarnaeftirlit. „Við höfum búið víða, ég hef t.d. verið heilsugæsluljósmóðir á Selfossi, Akranesi og nú í Mosfellsbæ," segir Hanna. „Ég hef upp- lifað miklar viðhorfsbreytingar varðandi fæðingar á þessum tíma og finnst að þar hafi aukin menntun kvenna sitt að segja. Konur líta meir á fæðingar sem eðlilegan hlut og vilja hafa meira um þær að segja. Sem heilsugæsluljósmóðir starfa ég mjög sjálf- stætt. Ég sé hverja konu 8-15 sinnum á meðgöngu, fylgist með líðan hennar og veiti ráðgjöf. Eftir fæðingu fylgi ég konunni gjarnan eftir í ungbarnaeftirliti. Þannig myndast oft góð og langvarandi tengsl. Hanna á tvö uppkomin börn og tvö barnabörn. Hún og mað- ur hennar eru í 18 til 20 manna gönguhópi með vinum og vanda- mönnum sem fer í viku gönguferð um hálendið á hverju ári. Hún segir þau ekki í vandræðum með að finna nýja og spennandi staði á öræfum Islands og verða aldrei leið á því að ferðast um landið. Hún er líka ( Soroptimistaklúbbi en það eru alþjóðleg samtök sem vinna að mannréttindum og stöðu kvenna um allan heim. Hugmyndafræði klúbbsins fellur vel að skoðunum minum, en „ég hika ekki við að segja að ég sé femínisti," segir Hanna. „Ég er mjög áhugasöm um kvenréttindi, hugsa oft um þau frá morgni til kvölds og tel mig meðvitaða um hvað mín mannrétt- indi snúast. Mér finnst að ungu konurnar mættu taka sér virkilegt tak í jafnréttismálunum og ekki sist launamálunum sem ganga allt, allt of hægt. Með sama hraða tekur það 114 ár aðjafna launa- muninn. VERA er kjarngott fæði Mér finnst VERA mjög gott blað. Það gerir kröfur til mín sem les- anda því ég þarf að setjast niður og lesa, það er ekki nóg að renna yfir blaðið eins og mörg önnur blöð. Ég þarf að rífa það í mig eins og harðfisk, sem er kjarngott fæði eins og allir vita. Mér finnst VERA besta blaðið og kann vel að meta þegar það tekur á málum sem koma síðar í umræðu í þjóðfélaginu. Það sýnir að VERA er á réttri leið." Hanna segist hafa farið með blaðið á kaffistofuna í vinnunni að loknum lestri og það vekji oft umræður. Hún segist lika ota blaðinu að ungum konum, t.d. dóttur sinni sem hefur lokið námi í mannfræði og er vakandi fyrir gagnrýnni hugsun. „Ég var með- vituð um það þegar ég giftist að við skyldum deila verkunum. Við fengum góðan tíma áður en börnin fæddust og gátum mótað sambandið. Mér finnst það sýna að vel hafi tekist til þegar systur mannsins míns segja að hann hljóti að vera besti eiginmaður i heimi. Þegar bræður mínir segjast vorkenna honum að búa með svona konu, veit ég líka að mér hefur orðið vel ágengt. Konur sem bjóða mönnum sínum sömu þjónustu í sambúðinni og þeir fengu heima hjá mömmu geta sjálfum sér um kennt að hafa lent í þjónustustörfunum. Þetta getur tekið tíma en skilar sér margfalt til þaka,” X 6 / áskrifandinn / 2. tbl. / 2003 / vera
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.