Vera


Vera - 01.04.2003, Qupperneq 13

Vera - 01.04.2003, Qupperneq 13
/ MÉR FINNST ^Haukur Már Helgason nemí í Berlín Að óttast sína sögu »Aðspurður um álit sitt á Tony Blair sem stjórnmálamanni segir William Hague, fyrrverandi formaður Ihaldsflokksins breska og stuðn- ingsmaður stríðs við írak og önnur lönd sem eru óhlýðin Bandaríkjun- um, að hann telji ólíklegt að Blair verði minnst sem stórmennis á spjöldum sögunnar. Tony Blair sjálfur hefur ítrekað vísað til þess í ræðu að sagan muni réttlæta stríðið: „History will prove us right". George Bush gerir ekkert slíkt - enda trúir hann á guð. Sagan, hin ritaða saga, er æðsti dómari í siðferðilegum álitaefnum meðal trúlausra - tökum því hugtakinu „trúleysi" með fyrirvara. Tony Blair, eins og æði margir frjálslyndir Vesturlandabúar, trúir á söguna. 4- þetta er ekki hin hegelíska saga stéttaátaka og línulegrar fram- vindu sem var úrskurðuð af í amerískum bókum á síðasta áratug, heldur hin ritaða saga sem er og verður kennd í barna- og ung- lingaskólum meðan mannkyn þrífst. Hún er, eins og allt sem við segjum, einföldun á veruleikanum enda kemst ekki veruleikinn á DVD diska, hvað þá í bækur. Þegar veruleikinn er einfaldaður er lögð áhersla á eitt og öðru ýtt til hliðar. Ofureinföldun nefnum við það þegar einhverju sem okkur Sagan sem mun standa eftir stríðið verður eins og alltaf, óhjá- kvæmilega, einföldun. Og sigurvegararnir munu þar hafa haft réttan málstað að verja - einu stríðin sem er raunverulega efast um að Bandaríkin hefðu átt að taka þátt í eru stríðin sem þau töpuðu. Sagan er til og hún verður til. En hún er ekki eilíflega ein og söm, heldur kvik, plastísk. Allur sigur er tímabundinn, öll ríki renna sitt skeið, hugmyndafræði rís og hnigur. Þar kemur meira að segja dagur að sigurvegari þessa stríðs fellur úr keppni og nýir SAGAN SEM MUN STANDA EFTIR STRÍÐIÐ VERÐUR EINS OG ALLTAF, ÓHJÁKVÆMILEGA, EINFÖLDUN. OG SIGURVEGARARNIR MUNU ÞAR HAFA HAFT RÉTTAN MÁLSTAÐ AÐ VERJA - EINU STRÍÐIN SEM ER RAUN- VERULEGA EFAST UM AÐ BANDARÍKIN HEFÐU ÁTT AÐ TAKA ÞÁTT í ERU STRÍÐIN SEM ÞAU TÖPUÐU. finnst mikilvægt er ýtt til hliðar til að stytta mál og einfalda. „Hvað segirðu gott?" „Allt *gætt..." - viðtekin og kurteisleg ofureinföldun sem heldur viðmælanda í tilhlýðilegri fjarlægð frá srnáatriðum sem koma ekki öllum við. Á þessum nótum hafa svör bandarískra herforingja verið við spurningum blaðamanna framan af stríðinu: „Hvað segirðu 9°tt?" „Allt *gætt..." Það er Ifka ágætt að svara spurningum svona þegar stríði er olokið, þegar stríð er varla hafið, og geyma þá söguritun til síðari t'ma, skilja eftir auðar síður í bókinni til að tryggja sigurvegaran- um næði til að vanda sig við að fylla þær seinna meir. Með ein- földunum. menn fá næði innan nýrra veggja til að skrifa sögu. Þess vegna ættum við, hinir frjálslyndu vestrænu trúleysingjar, ekki að spyrja hverja sagan gerir réttláta, hver hlýtur góðan orðstír og hver slæman. Við söguhneigðu kvikindin skulum spyrja: í hvaða sögu - og hvers sögu - vil ég vera réttlátur og í hvaða sögu læt ég þá kjurt liggja að ég sé dæmdur asni? Nú getur virst ansi langt i land, lengra en nokkru sinni kannski, en okkar saga verður skrifuð - og afskrifuð og rituð og afrituð og... því sé eitthvað í lagi í heiminum verða enn manneskjur á þessari jörð um langan aldur. X Ég skora á Hjörleif Finnsson heimspeking að skrifa í næsta blað. vera / mér finnst / 2. tbl. / 2003 / 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.