Vera


Vera - 01.04.2003, Side 22

Vera - 01.04.2003, Side 22
Miskunnarleysi mátunarklefans »Fyrir framan spegil í skæru Ijósi að troða sér í gallabuxur, jakka, nærföt... ekki uppáhaldið. Kannski best að hætta við og hrökklast aft- ur út í sínum gömlu og allt í einu góðu fötum. Lesendur gætu kannast við tilfinninguna, liðið eins og flóðhesti í mátunarklefa verslana og þótt þrautin þyngri að leita sér að fatnaði í stað þess að hafa gaman af. Ætli eitthvað sé að þarna? Skyldi það vera sú sem mátar eða búð sem hefur helst lítil og Barbíleg föt, eða áhrif þess áróðurs að þveng- mjó sé konan ánægð? Þórunn Þórsdóttir VERA fór í nokkrar verslanir með konum á ýmsum aldri og allavega í laginu, til að skoða og spjalla og heyrði meðal annars þetta: Markaðurinn segir hvernig þú átt að vera, þarfir hans ganga fyrir þínum og þú ert vissulega dæmd. Þetta er ein skoð- un, þær reynast mismiklar og misjafnar en málið oft svolítið viðkvæmt. En spurn- ing er kannski um áherslur í því sem boð- ið er, miðað við alls konarfólksem allt þarf að klæða sig - lítið og stórt - en í seinni hópnum fer fjölgandi. 5 fyrsta leiðangri er sú yngsta fimmtán ára, frekar hávaxin og komin með svolitlar mjaðmir og læri. Henni finnst leiðinlegt að fara í búðir af því oft passa einungis stærstu núm- erin á hana og fötin sem henni finnst flott fást þar ekki alltaf. Þó er hún eðli- leg íslensk stúlka, alls ekki feit og ekki ofurmjó. Henni kom ánægjulega á óvart að hægt var víðast með smá vilja að finna nokkurn veginn mátuleg föt sem hana langaði í. Að vísu gat hún ekki valið hvað sem hún vildi, oftast voru einar eða tvennar buxur til á hana. En buxnakaupin höfðu beðið af því hún kveið þeim aðeins. Með eru líka tvítug og 25 ára kona, einnig fremur hávaxnar báðar en ósköp venjulegar að eigin sögn. Þeim finnst ekki tiltökumál að finna sér föt, helst að buxnaskálmar og ermar séu stuttar og snið þannig að þröngt um lærin þýði of þröngt um mittið og öfugt. Eins og miðað sé við 22 / holdafarsdómstóllinn / 2. tbl. / 2003 / vera

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.