Vera


Vera - 01.04.2003, Page 27

Vera - 01.04.2003, Page 27
/ HOLDAFARSDOMSTOLLINN m 1 * J m jÁ ! f % 1 W | fullorðnum auknum áhyggjum. í fyrsta lagi hefur allt aðgengi að fjöl- ntiðlaefni tekið stakkaskiptum hér á landi á undanförnum árum. Nú bjóða sjónvarpsstöðvar á borð við Skjá 1 og PoppTívi afþreyingarefni allan sólar- hringinn þar sem eru aðallega sýnd myndbönd með vinsælasta tónlistar- efni ungu kynslóðarinnar. hetta efni hefur margvíslega fræðslu uppá að hjóða - dansspor, kynþokkafullar hreyfingar, æskilegt útlit og síðast en ekki síst hugmyndir um kynhlutverk. Eitt af mínum uppáhaldsmyndbönd- Urn er óneitanlega „Dirty“ med Christ- ma Aguilera sem hefur farið sigurför um heiminn. Ummæli fimmtán ára unglingsstráks endurspegla að mínu mati viðbrögð margra fullorðinna við þessu myndbandi þegar hann sagði: »Hvers vegna að horfa á klámmynd þegar maður getur séð Christinu á PoppTíví?" Ég vil reyndar ekki taka svo djúpt í árinni. Hvað sem fólki kann að finnast um þetta myndband hefur það í það minnsta fengið verðskuldaða athygli. A sjónvarpsstöðvum og í tímaritum er verið að ögra kynímyndinni með aukinni áherslu á hið kynferðislega, Þar sem fáklæddur (kven)líkaminn er í sviðsljósinu. Samskonar fatnaður og stórstjörnunar klæðast fæst nú í aukn- um ntæli í öllum „betri“ tískuvöru- verslunum landsins. Jafnvel hafa sum- Britney Spears einkennin Britney Spears er ein af áhrifamestu fulltrúum ungu kynslóðarinnar. 1 þeirri umræðu sem farið hefur fram í WINSLET VAR FORSÍÐUSTÚLKA BLAÐSINS GQ í FEBRÚAR SL. EN ÞAR SEM HÚN ÞÓTTI EKKI ALVEG NÆGILEGA GRÖNN VAR VAXTARLAG HENNAR LAGFÆRT í TÖL.VUVINNSLU. ar verslanir gefið sig út fyrir að selja föt sem vinsælar poppstjörnur á borð við Jennifer Lopez (J.Lo) og P.Diddy fram- leiða og klæðast. Hver kannast ekki við hina geysivinsælu g-strengi sem börn niður í sex ára aldur geta keypt og hina ógleymanlegu magaboli sem allar ungar stelpur verða að klæðast? Armbönd níunda áratugarins eru g- strengir samtímans. IJað sem vekur hins vegar áhyggjur fullorðinna eru þær áherslubreytingar sem hafa átt sér stað á undanförnum árum í tónlistar- iðnaðinum. Rass, brjóst og kynæsandi hreyfingar eru lykillinn að athygli á- horfandans, sama hvernig tónlistin kann að hljóma. Og þessi tónlistar- menning er markaðssett fyrir mun yngri aldurshóp en tíðkaðist áður. Bandaríkjunum er álitið að þessi unga danta undirstriki þá hugmyndafræði að líkami kvenna sé það sem selur. Ef þú hefur „lúkkið“ þá kemstu áfram, sarna hvers konar söngkona þú kannt að vera. Ekki er þetta neinn nýr sann- leikur. Madonna komst elcki áfram á sönghæfileikum sínum heldur útliti sínu og ögrandi framkomu. Mikil umræða hefur verið að und- anförnu um áhrif stórstjörnunnar Britney Spears á viðhorf og sjálfsmynd ungra stelpna. Þessi unga dama hefur hrifsað til sín hug og lrjörtu ungmenna um allan heinr með hrífandi útliti sínu, kynþokkafullu framkonru og álrrifa- miklu tónlist. Hvað sem um hana má segja þá hefur hún í það minnsta breytt hugmyndum fólks um hvað það feli í sér að vera „hrein mey" (á bandarískan 4 vera / holdafarsdómstóllinn / 2. tbl. / 2003 / 27

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.