Vera


Vera - 01.04.2003, Page 46

Vera - 01.04.2003, Page 46
/MATUR Bókin Hristist Fyrir.Notkun kom út nú fyrir jólin. Bókin inniheldur ekki bara fjölbreyttar uppskriftir að góðum mat sem allir geta eldað heldur hristir hún einnig upp í þér og matarvenjum þínum með frumlegum og skemmtilegum hugmyndum. Bókin fæst hjá Guðbjörgu sjálfri (gudbjorgg@sim- net.is), á Femin.is, í Kokku á Laugavegi, Verksmiðjunni Skólavörðustíg og Duku í Kringlunni. X Sykurpúðar að hætti Ameríkana A: Ég set einn sykurpúða (ekki þessa með fyllingunni inní) framan á grillpinna eða hæfilega langa trjágrein og held honum fyrir ofan grillið þangað til hann er orðinn stökkur að utan og farinn að brúnast örlítið. Þá er hann borðaður beint af grillpinnanum. B: Einnig finnst Kananum gott að setja grillaða sykurpúðana á milli tveggja súkklaðikexa, eða Orio kex sem tekið er í sundur eins og í þessu tilviki hér. Aldrei of seint Það er aldrei of seint að bæta menntun sína. Hjá okkur getur þú hafið nám á grunnskólastigi eða framhaldsskólastigi eftir þínum persónulegu þörfum. Þú getur tekið eitt fag eða fleiri og hagað námshraða samkvæmt því. ATH: Félagsliðanám er ný stutt námsbraut, sem er ætluð fólki við umönnunarstörf. Einnig er fjölbreytt frístundanám í boði: Tungumál, bóklegar greinar, verklegar greinar, listgreinar. Islenska fyrir útlendinga: Byrjendanámskeið og framhaldsnámskeið. Kennslustaðir: Miðbæjarskólinn, Fríkirkjuvegi 1 og Mjódd, Þönglabakka 4. Upplýsingar í síma 551 2992, Fax: 562 9408 • Netfang: nfr@namsflokkar.is • www.namsflokkar.is 46 / matur / 2. tbl. / 2003 / vera

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.