Vera


Vera - 01.04.2003, Side 65

Vera - 01.04.2003, Side 65
 /ALÞINGISVAKTIN ÞAÐ JÁKVÆÐA SEM GERST HEFUR Á UNDANFÖRN- UM ÁRUM ER BYLTINGIN í MENNTUN KVENNA OG HVERNIG ÞÆR SÆKJA FRAM í STJÓRNUNARSTÖÐ- UR, ÞÓ VERULEGA VANTI Á EÐLILEGAN HLUT ÞEIRRA Á ÞEIM VETTVANGI. lag. Ætli fjöldi mála hjá mér endur- spegli ekki minn mikla og Itrennandi áhuga á að breyta þjóðfélaginu. Ég legg því mikið upp úr því að undirbúa og flytja þingmál, sem oft tekur auðvitað mikinn tíma. En það er líka liður í að koma því sent ég stend fyrir á framfæri yið kjósendur og að þrýsta á unt fram- gang mála. Þetta er afar gefandi því niaður fær mikla þjálfun og þekkingu við að vinna að undirbúningi þing- ntála. Það þarf svo víða að taka til hendinni og ég hef náð þó nokkrum arangri með flutningi þessara mála í gegnum tíðina, jafnvel í stjórnarand- stöðu. Fyrirspurnir og önnur þingmál sem ég hef flutt eru sennilega orðin á annað þúsund og ótrúlega mörg hafa verið samþykkt og önnur haft áhrif til kreytinga á löggjöfmni í landinu. En það er auðvitað misjafnt hvaða áhersl- Ul' þingmenn leggja. Suntir telja nasgjanlegt að beita sér í nefndum og flytja sjaldan mál. Á þessu er allur gangur.“ Femínistafélag Islands - ertu með? „Nei, ég er ekki félagsmaður í Femínistafélaginu en ég tel þennan fé- lagsskap mjög þarfan við að fylgja eftir jafnréttis- og kvenfrelsismálum. Jafn- réttisbaráttan verður að eiga öfluga málsvara innan og utan þings. Valdhaf- ar, sem að stærstum hluta eru karlar, eru alltof værukærir og sofna á verðin- um ef þeir fá ekki öflugt aðhald. Það jákvæða sem gerst hefur á undanförn- um árum er byltingin í menntun kvenna og hvernig þær sækja fram í stjórnunarstöður, þó verulega vanti á eðlilegan hlut þeirra á þeint vettvangi. Ég er t.d. mjög ánægð með þann ár- angur sem Reykjavíkurlistinn hefur náð í að rétta hlut kvenna en konur voru einungis 10% stjórnenda þegar Reykjavíkurlistinn tók við en eru nú helntingur. Það sárasta er hve launa- misrétti kynjanna er enn mikið og í því máli verðum við að herða róðurinn til að ná meiri árangri þar.“ Eiga þingkonur að gæta systra sinna? „Mér finnst það skylda allra að gæta systra sinna - ekki bara kvenna heldur einnig karla - og að tala fyrir réttinda- málunt kvenna. Það eru mannrétt- indamál sem skipta alla máli.“ Þingmál flutt af alþingiskonum á yfirstandandi þingi Með þingmálum er átt við frumvörp til laga, þingsályktun- Eins og sjá má á yfirlitinu er fjöldi þingmála sem artillögur og fyrirspurnir til ráðherra. þingkonur hafa flutt allt frá núlli upp í 45 þing- mál - það skal tekið fram að nefndarálit teljast Jóhanna Sigurðardóttir 45 mái ekki til þingmála eða frumskjala. Þannig er ein- Valgerður Sverrisdóttir 32 mál ungis um að ræða þingmál sem viðkomandi Kolbrún Halldórsdóttir 31 mál þingmaður hefur verið í forsvari fyrir eða fyrsti Rannveig Guðmundsdóttir 26 mál flutningsmaður að. Hvað ráðherrana í hópnum Þuríður Backman 25 mál varðar þá eru stjómarfrumvörp að sjálfsögðu Margrét Frímannsdóttir 21 mál talin með þar sem viðkomandi ráðherra fer fyr- Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir 19 mál ir þeim frumvörpum ríkisstjórnarinnar sem til- Svanfríður Jónasdóttir 14 mál heyra þeirra ráðuneyti. Það sama má segja um Sólveig Pétursdóttir 14 mál aðrar þingkonur, þær leiða oft hóp þingmanna Þorgerður K. Gunnarsdóttir 14 mál sem standa að baki hverju máli. En - samt sem Drífa Hjartardóttir 11 mál áður er geysimikill munur á fjölda fluttra mála. Þórunn Sveinbjarnardóttir 11 mál Það kemur ekki mjög á óvart að Jóhanna Siv Friðleifsdóttir 9 mál Sigurðardóttir, sú reynda þingkona sem hefur Bryndís Hlöðversdóttir 9 mál setið lengst allra kvenna á þingi, skuli vera með Sigríður Ingvarsdóttir 8 mál flest máin. Við ákváðum af þessu tilefni að Katrín Fjeldsted 6 mál spjalla við Jóhönnu um pólitíkina, þingstörfin Ásta Möller 5 mál og hvort fjöldi fluttra þingmála segi einhverja Lára Margrét Ragnarsdóttir 5 mál sögu um vinnubrögð þingmanna, eða eiga aðr- Guðrún Ögmundsdóttir 4 mál arskýringarbeturvið. Sigríður Jóhannesdóttir 4 mál Arnbjörg Sveinsdóttir 3 mál Sigriður Anna Þórðardóttir 1 mál Jónfna Bjartmarz 0 mál —— vera / alþingisvaktin / 2. tbl. / 2003 / 65 Martha Arnadóttir

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.