Vera


Vera - 01.04.2003, Side 73

Vera - 01.04.2003, Side 73
/FRÁ JAFNRÉTTISSTOFll Páll Pétursson félagsmálaráð- herra og yfirmaður jafnréttis- mála á íslandi flutti ávarp við opnun þingsins. Steingrímur J. Sigfússon í ræðustól. Kristbjörg flytur erindi sitt um sýn ungra femínista á jafnrétti kynjanna. ( sal Ketilshússins, fremst sitja aðalfyrirlesarar þingsins Anne Havnor, Jorgen Lor- entzen, Hólmfríður Anna Baldursdóttir og Kristbjörg Kristjánsdóttir. Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða í alla stefnumótun Helga Jónsdóttir, sem starfar í ijármálaráðuneyti og er ann- ar tveggja fulltrúa íslands í norrænum vinnuhópi um kynj- aða fjárhagsáætlanagerð, fjallaði unt verkefni norræna vinnuhópsins og íslenska fjárlagaumhverfið með tilliti til kynjaðrar fjárhagsáætlanagerðar. Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir alþingismaður og formaður nefndar um jafnrétti kynja við opinbera stefnumótun sagði frá niðurstöðum nefndarinnar, en hún skilaði skýrslu á haustdögum 2002. Sigríður Elín Þórðardóttir félagsfræðingur á Byggðastofnun flutti erindi sem liún kallaði „Eru hindranir á vegi kvenna í atvinnurekstri?" en þar sagði hún frá niðurstöðum rann- sóknar sinnar urn konur og atvinnurekstur. Hermann Sæ- tnundsson ráðuneytisstjóri félagsmálaráðuneytis ræddi um samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða í starfi ráðu- neyta og Sigríður Vilhjálmsdóttir sérfræðingur á Hagstofu íslands gerði grein fyrir mikilvægi tölfræði sem verkfæris við samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða. vinnumarkaðurinn - laun, áhrif, jafnréttisstefna sveitarfélaga, byggðaþróun Gísli Tryggvason, framkvæmdastjóri BHM gerði grein fyrir launamálum kynjanna hjá ríkinu og áhrifum dreifstýrðs launakerfis á kynbundinn launamun. Berglind Eva Ólafs- dóttir starfsmatsráðgjafi hjá Sambandi íslenskra svcitarfé- laga kynnti kynhlutlaust starfsmatskerfi sem tekið verður í notkun hjá íslenskum sveitarfélögunr á næstunni. Erla Hulda Halldórsdóttir gerði grein fyrir undirbúningi á kvennagagnabanka sem væntanlega mun hafa þau áhrif að konur með ýmiss konar sérfræðiþekkingu verði sýnilegri á hinum ýrnsu sviðunt atvinnulífsins. Marsibil Sænrundsdótt- lr formaður jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar sagði frá nýrri jafnréttisstefnu borgarinnar sem er mun víðtækari og markvissari en fyrri áætlanir borgarinnar í jafnréttismálum °8 Kjartan Ólafsson félagsfræðingur á Byggðarannsókna- stofnun Islands kallaði erindi sitt „Kynleg byggðaþróun" en í því velti hann vöngum yfir fólksflutningum frá landsbyggð til höfuðborgarsvæðis, m.a. með tilliti til menntunar- og at- vinnumöguleika. Samskipti kynjanna - fjölskylduábyrgð, samvinna kynjanna, kynbundið ofbeldi og klámvæðing Ingólfur V. Gíslason sérfræðingur á Jafnréttisstofu fjallaði annars vegar um helstu verkefni og áherslur karlanefndar Jafnréttisráðs og hins vegar um rannsókn sína á forsjárdóm- um. Irma Erlingsdóttir forstöðumaður Rannsóknastofu í kvennafræðum hafði framsögu um femínisma í nýrri hreyf- ingu og gerði þar grein fyrir nýstofnuðu Femínistafélagi ís- lands og umræðulistanum feministinn.is. Elísabet Þorgeirs- dóttir ritstýra Veru fjallaði um kynbundið ofbeldi sem leynist víða í samfélaginu í hinum margbreytilegustu mynd- um og Guðmundur Oddur prófessor við Listaháskóla Is- lands gerði klámvæðingu almenningsrýmisins, eins og hún birtist í auglýsingum, að umfjöllunarefni út frá sjónarhorni grafísks hönnuðar. Að þingi loknu bauð félagsmálaráðherra til móttöku í Lista- safni Akureyrar og þar á eftir bauð Akureyrarbær upp á Uppistand unt jafnréttismál í Samkomuhúsinu. Óhætt er að segja að Jafnréttisþingið hafi heppnast vel. Þátttaka var góð, rúmlega 100 manns og þar á meðal noltk- ur fjöldi stjórnenda samfélagsins; ráðherrar, alþingismenn og stjórnendur sveitarfélaga - að ógleymdu görnlu og nýju baráttufólki fyrir jafnrétti kynjanna. Þingið mun því von- andi hafa tilætluð áhrif - að halda á lofti umræðu um stöðu kynjanna með það fyrir augum að hún skili sér í aukinni meðvitund og vilja til þess að bæta úr. Þau sem vilja kynna sér erindin sem flutt voru á Jafn- réttisþingi geta nálgast þau á vefsíðu Jafnréttisstofu www.jafnretti.is X KBR vera / frá jafnréttisstofu / 2. tbl. / 2003 / 73

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.