Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1943, Page 97
Sigurður Sigurðsson.
Trgggvi Þórhallsson.
Um notkun stórvirkra véla við jarðyrkjustörf, nýrækt
f.vrst og fremst. AS hans forgöngu voru þúfnaban-
arnir hingaS fengnir og verkfærasýningin haldin i
Reykjavík 1921. Hér kom í ljós, hverju aflcasta mátti
meS stórvirkum vélum, hversu skammt landsmenn
voru komnir i notkun verkfæra og hversu mikiS var
þó til af slíkum vélum, er orSið gætu aS ómetanlegu
liði við ræktun landsins og nýtingu þess, ef menn
lcynnu ineð að fára og hefðu bolmagn lil þess að eign-
ast þær. Þetta sáu menn nú og skildu, en vegna fjár-
kreppu, sem um þetta leyti var á skollin, horfði óvæn-
lega um framkvæmdirnar. Sýnt var, að liér var ekki
unnt að koma miklum umbótum fram án mikilla fjár-
framlaga af opinberri liálfu. Til þess aS ráða bót á
þessu voru jarðræktarlögin sett 1923 og síðar iög um
einkasölu á tilbúnum áburði (1929). Lagasetning
liessi á sér merkilega isögu, sem ekki er unnt að rekja
hér, en með henni var grundvöllur lagður að hinni
miklu nýyrkju, er hér liefur orðið siðan. Jarðrækt-
arlögin sættu nokkrum sinnum breytingum, eftir því
sem reynsla þótti benda til að betur gegndi, síðast
og gagngerðast 1930.
(95)