Freyr - 15.04.1966, Qupperneq 22
200
FREYR
Mjólkurflufningabílarnir eru komandi og farandi, þaS gengur ákjósanlega vel meS flutningana meS nýja fyrirkomulag-
inu, segja allir einum rómi, sem aS samvinnu-mjólkurbúi þessu standa.
en sama lítrafjölda - 320 lítra - af undan-
rennu, kom bíllinn með frá mjólkurbúinu
til bóndans, og dældi henni í geymi sem
bóndi varðveitti hana í, en hún skyldi notuð
handa kálfum og að einhverju leyti handa
svínum.
Mjólkurgeymirinn í bílnum rúmaði 6000
lítra. Hann var hólfaður í þrennt, stærsta
hólfið rúmaði 3000 lítra en hin sína 1500 lítr-
ana hvort. Minni hólfin voru fyrst og fremst
ætluð til þess að flytja undanrennu og mysu
frá mjólkurbúunum til bænda um leið og
nýmjólkin er sótt.
Þegar mjólkin var tekin yfir í tankbílinn
virtist okkur vera gætt hins mesta hreinlæt-
is á allan hátt. í slöngunni, sem mjólkinni
var dælt í gegn um, út í bílinn, var komið
fyrir síum.
Á slönguendanum var ventill og væri
honum ýtt niður þá opnaðist hann. I bílnum
var mælir, sem mældi mjólkina svo ná-
kvæmt, að hann sýndi brot úr lítra. Þá var
búnaður til að stilla mjólkurrennslið í bíl-
inn að mælinum, og ef hún sogaðist þangað
of ört sendi stillir þessi nokkurn hluta henn-
ar til baka aftur.
Verkfræðingurinn, sem leiðbeindi þarna,
sagði okkur, að mjólkurtankurinn væri
þveginn á mjólkurbúinu og væru hólfin
þvegin öll í einu úr kemiskri upplausn og
tæki það aðeins stutta stund, en mjólkur-
mælinn þyrfti að hreinsa og þerra með
handafli.
Frá þessu bóndabýli fylgdum við nú tank-
bílnum til Henning-Sædding mjólkurbús.
Búið var að endurskipuleggja þetta
mjólkurbú og endurnýja flestar vélar þess,
enda kom öll mjólk til búsins með tankbíl-
um.
Mjólkurbústjórinn sagði okkur, að á árinu