Freyr - 15.04.1966, Qupperneq 55
FREYR
233
JÖHANNES EIRÍKSSON:
„Ruakura" mjaltasjá
Mjaltasjáin er kennd við tilraunastöðina
„Ruakura“ á Nýja-Sjálandi, þar sem hún
var fyrst smíðuð og notuð. Mjaltasjáin hefur
hlotið almenna viðurkenningu um heim
allan, og hefur notkun hennar farið ört vax-
andi. Hefur hún verið notuð á Hvanneyri
um nokkurt skeið og reynst ágætlega.
Mjaltasjáin er tengd við mjaltatæki rör-
mjaltakerfis mjaltabása, og er ein mjaltasjá
fyrir hvert mjaltatæki.
Hlutverk mjaltasjárinnar eru: (1) að
sýna gang mjalta, (2) að sýna, hvernig hver
einstök kýr selur, (3) að sýna ranga aðferð
við mjaltir og (4) til leiðbeiningar við skipu-
lagningu á mjaltastarfinu, t. d. hvenær á að
byrja að vélhreyta og hvenær á að taka
spenahylkin af júgrinu.
Þegar sjónglerið er fullt, er mjólkur-
rennsli um mælinn frá júgri kýrinnar meira
en 1 kg á mínútu. Þegar mjólkin hylur ekki
meira en % hluta sjónglersins, er rétt að
byrja vélhreytun. Spenahylkin á að taka
af júgrinu, þegar mjólkin nær 14 hluta sjón-
glersins, en þá nemur mjólkurrennslið um
0,2 kg á mínútu. Þegar kýr selja vel og
mjólkast fljótt, borgar sig oft að taka spena-
hylkin af, þegar mjólkin hylur V2 sjónglerið.
Hér verður sýnt með 3 dæmum, hvernig
mjaltasjáin er til leiðbeiningar við mjalta-
starfið og hvaða gagn má af henni hafa.
Mynd 2. Mjaltaeinkenni kýr, sem er góð
í mjöltum, eins og mjaltasjáin sýnir þau.
Efsta röð og miðröð myndarinnar skýra sig
sjálfar. Neðsta röð sýnir sjóngler mjalta-
sjárinnar. Eins og myndir í neðstu röð sýna,
þá er ekkert mjólkurrennsli við byrjun
mjalta, en þegar kýr er mjólkuð, sem er góð
í mjöltum og selur vel, eykst mjólkurrennsl-
ið ört og sjónglerið fyllist af mjólk þegar á
fyrstu mínútunni. Sjónglerið er fullt, unz
mjólkurrennslið minnkar skyndilega á
4.—5. mínútu, júgrið hefur þá tæmzt fljótt
og vel, og spenahylkin eru tekin af júgrinu.
Mynd 3 sýnir, hvernig mjöltun verður,
þegar kýrin hefur verið búin illa undir
mjaltir. Af þeim sökum er ekki fullt mjólk-
urrennsli á fyrstu mínútu, og á þriðju mín-