Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.2000, Blaðsíða 6

Freyr - 01.12.2000, Blaðsíða 6
Fjölgun ífjósinu. Hún er lítil á skagfirskan mæli- kvarða, ég sé um 12-14 hross sem kona mín, faðir og systir eiga. Flest em þessi hross brúkunarhross, en pabbi er duglegur við tamningar og þjálfun. Konan mín á ræktunar- hryssu sem tengdafaðir minn, Páll Dagbjartsson í Varmahlíð, sér um að velja stóðhest á. Segja má að ég sjái bara um að gefa hrossunum eins og þarf en svo sjá aðrir um annað. Ég fer á bak einu sinni á ári til að fara í göngur og vil þá fá góð- an klár til fararinnar. Hve langar göngur eru hér? Á Öxnadalsheiði, þar sem við eigum upprekstrarrétt, eru tveggja daga göngur. Einnig smala ég dal- inn hér fyrir ofan, Akradal, sem er mín afrétt í raun og veru, en hann er genginn á einum degi. Hefur fœkkað á þessum afrétt? Já, það hefur fækkað mikið síð- ustu áratugi og gróður vaxið í seinni tíð. Báðar þessar afréttir eru á góðri leið hvað gróður snertir. Þó em hross á þeim báðum en þeim fer líka fækkandi. Hér á Akratorfunni virkar ákaf- lega þéttsetið, hvernig er að stœkka hér bú í þessum þrengslum ? Faðir minn syngur í Karlakómum Heimi, ásamt mörgum fleiri bænd- um. Einn þeirra spurði hann í fyrra eða hitteðfyrra, hvemig í ósköpun- um fer hann Gunnar sonur þinn að því að selja hey af þessu koti? Ég hef alltaf á hverju ári selt dálítið af heyi enda tel ég að menn eigi að hlaupa undir bagga með nágrönnun- unt ef með þarf og flesta vetur að undanfömu, nema hinn síðasta, hef- ur vantað hey hér í Skagafirði. Þar sem ég hef alltaf átt hey aflögu hef ég selt svolítið árlega. En hvernig fer maður að þessu? Það er ekkert flókið, maður ræktar hvem einasta blett, sem er ræktanlegur, gjömýtir skítinn og ber ríflega á af tilbúnum áburði og þannig fæst góð og mikil uppskera. Ekki má gleyma að endurræktunin er lykilatriði ef há- marka á uppskeru túnanna, en túnin hér em flest innan við átta ára. Þá er einnig rétt að benda á að meðferð túnanna hefur mikið að segja varðandi uppskeruna, en ég beiti þau ekki að vorinu, aðeins eftir annan slátt að haustinu og þá hóf- lega. Ég rækta einnig grænfóður á um 10 hekturum árlega. Ræktað land á jörðinni er um 46 hektarar, en úthagi lítill. Það em aðeins u.þ.b. tveir mánuðir á sumri sem ég gef ekki geldneytum út með beitinni. Eru allar jarðir hér í kring setn- ar? Nei, ekki alveg og ég er nýbúinn að taka á leigu jörð hér næsta mér, Brekkukot, hér upp við fjallið og við það rýmkast töluvert um fyrir mér, einkum hvað varðar beit. Verktaki hjálpar við heyskapinn Hvernig hagar þú heyskap þínum? I heyskapinn hef ég ráðið mér verktaka, Bessa Vésteinsson í Hofsstaðaseli. Þetta fyrirkomulag hefur reynst mér mjög vel. Við Bessi komurn okkur saman um það hvenær það henti best að binda hjá mér. Síðan slæ ég milli mjalta og annar snýr heyinu. I sumar sló ég 37 ha á tveimur dögum og heyinu var snúið jafnóðum. Það sem var slegið fyrsta daginn var garðað á þriðja degi og hitt daginn eftir og þá tók Bessi við með sín tæki og mannskap og þessi heyskapur tók fjóra daga, 600 rúllur. Ég á mína sláttuvél og snúnings- vél, og ennþá á ég múgavél. Bessi býður upp á stjörnumúgavél sem tekur rúma átta metra fyrir og hefur undan hans tækjum. Ég hef þó þrjóskast við að hætta að nota mína múgavél vegna þess að ég vil ekki vera að hanga yfir honum í hans vinnutíma. Ég vil geta klárað mín verk fyrir kvöldfjós. Þetta tókst þessa fjóra daga, ég sló í tvo daga og múgaði tvo og gat svo unnið mín fjósverk á réttum tíma. Ég á svo hvorki bindivél né pökkunarvél. Ég tel mig hagnast vel á þessu fyrir- komulagi, en þetta er fjórða árið sem heyskap er svona háttað hjá mér. Hvað rœður Bessi við 'að þjóna mörgum bœndum á þennan hátt? Sjálfsagt 15-20, en það fer nátt- 6 - FREYR 11-12/2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.