Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.2000, Blaðsíða 52

Freyr - 01.12.2000, Blaðsíða 52
Uppeldi á kvígum Niðurstöður úr hollenskri doktorsritgerð Nýverið barst mér í hendur ný doktorsritgerð frá Hol- landi þar sem fjallað er um líkan til að meta hagkvæmasta fyr- irkomulag við uppeldi á kvígum til endumýjunar í mjólkurkúastofnin- um, (enska heitið er: Economic modelling to optimize dairy heifer management decisions). Höfundur hennar heitir M.C.M. Mourits. Þekkt er að Hollendingar eru taldir öðrum bændum fremri í mjólkur- framleiðslu. Þessi vegna er forvitni- legt að skoða aðferðir þeirra aðeins nánar. í annarri grein hér í blaðinu er fjallað um þróun í aldri og burð- artímadreifingu hjá fyrstakálfs kvígum hér á landi síðustu ár. Þær niðurstöður er forvitnilegt að reyna að meta með hliðsjón m.a. af þess- um hollensku niðurstöðum. Ritgerðinni er skipt í þrjá megin- þætti. í fyrsta lagi er yfirlit um til- tæka þekkingu um þá þætti sem hafa mest áhrif á uppeldi og þroska hjá kvígunum. í öðru lagi er fjallað um niðurstöður úr mjög víðtækri skoðanakönnum sem varpar ljósi á hvernig þessum þáttum er háttað í hollenskri mjólkurframleiðslu í dag. Meginhlutinn er hins vegar fræðileg lýsing á uppbyggingu á því líkani sem höfundurinn byggði upp og þeim niðurstöðum sem hann fékk við notkun þess. Hér á eftir verður aðallega gluggað í það sem lesa má úr tveimur fyrstu köflun- um. Höfundur byrjar á því að fullyrða að kostnaður vegna endumýjunar á mjólkurkúastofninum sé einn af stærri kostnaðarliðum mjólkur- framleiðslunnar. Þessi kostnaður sé á bilinu 15-20% af heildarkostnaði í framleiðslunni og sé yfirleitt mik- ið vanmetinn, auk þess sem þekk- ing á áhrifum þeirra þátta, sem mestu ráða þar sé miklu minni en eftir Jón Viðar Jónmundsson, Bændasamtökum íslands um flesta aðra þætti í framleiðslu- ferlinum. Þó að talsvert hafi verið gert af tilraunum víða um heimsbyggðina í sambandi við uppeldi á kvígum þá hafa þær ekki veitt nein afdráttar- laus svör um ýmsa mikilvæga þætti, m.a. vegna þess að um er að ræða samspil fjölmargra þátta, sem grípa hver inn á annan. Hér þarf m.a. að skoða ýmis áhrif frá upp- eldinu á gripinn í framleiðslu nokkrum árum síðar. Áhrif vaxtarhraða á afurðir Áhrif vaxtarhraða á uppeldis- skeiðinu á afurðir hjá kúnum full- orðnum hafa mikið verið rannsak- aðar. Um tveir áratugir eru síðan niðurstöður komu fram í mjög þekktum tilraunum í Danmörku um að mikill vöxtur hjá kvígukálfunum um og strax eftir kynþroska gæti haft umtalsverð neikvæð áhrif á mjólkurframleiðslu þeirra. Þarna eru mæld neikvæð áhrif á bilinu 10- 20% í mjólkurmagni. Skýringin er talin að mjög hraður vöxtur á þess- um aldri leiði til fitusöfnunar í mjólkurblöðrum í júgurvefnum, sem skerði varanlega framleiðslu- möguleika þeirra síðar á æviskeiði gripsins. Því hefur verið ráðlagt að vöxtur hjá kvígum af stærri naut- gripakynjum fari ekki yfir 700-800 g/dag og hjá Jerseykúm, sem eru líkar þeim íslensku að stærð, hafa þessi mörk verið sett við 500-600 g/dag. Höfundur vísar hins vegar til allmargra nýrra tilrauna þar sem kvígur hafa verið aldar langt um- fram þetta þar sem ekki hafa verið staðfest þessi neikvæðu áhrif. Ályktun hans er að skýrari svör um þessi áhrif séu mjög brýn til þess að uppeldi megi skipuleggja á sem hagkvæmastan hátt. Tilraunir um eldi á kvígum þegar líður á meðgöngutímann eru einnig fjölmargar. Auk þess hafa fjöl- margar hjarðrannsóknir verið gerð- ar á þessum áhrifum. Höfundur segir að hér séu niðurstöður skýrari. Greinilegt sé að góður vöxtur kvígnanna á þessu aldursskeiði skili sér í auknum afurðum þegar þær fara að mjólka. Neikvæð áhrif eru aðeins dæmi um þegar um um- talsverða offóðrun er að ræða. Möguleg neðri mörk þess hvenær kvígumar hefja framleiðslu ráðast af því hvenær gripimir eru kyn- þroska. Það er löngu vel þekkt að kynþroski nautgripa ræðst verulega af þroska þeirra og þannig er hægt að stýra honum vemlega með fóðr- un. Samkvæmt ritgerðinni er kyn- þroski hjá nautgripum þegar kvíg- umar hafa náð um 43% af eðlileg- um fullorðinsþunga. Burðarerfiðleikar hafa mikil og oft langvinn neikvæð áhrif. Höf- undur telur að lesa megi út úr rann- sóknum að þroski kvígnanna ráði langsamlega mestu um burðarerfið- leika hjá þeim. Bein áhrif aldurs óháð þroska séu sáralítil. Hann bendir á að á síðustu árum, með góðum upplýsingum um sæðinga- naut, séu bændur auk þess farnir að stýra þessum þætti að verulegu marki með vali þeirra. Rannsóknir á frjósemi hjá kvíg- um em ekki umfangsmiklar en höf- undurinn bendir á að vísbendingar geti verið um lægra fanghlutfall hjá mjög ungum kvígum en hjá lítið eitt eldri gripum. Hér má einnig benda á það, sem vel er þekkt hjá sauðfé, að frjósemi í fyrsta egglosi 52 - FREYR 11-12/2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.