Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.2000, Blaðsíða 41

Freyr - 01.12.2000, Blaðsíða 41
örari endurræktun fylgir seinni sláttur. Stór hluti kostnaðar vegna fóður- framleiðslu heima á búi er fastur kostnaður sem er óháður magni og gæðum fóðursins. Hagkvæmni mismunandi skipulags sláttutíma og endurræktunar byggir því að nokkru leyti á kostnaði við það um- framfóður sem kaupa þarf inn á bú- ið til þess að uppfylla fóðurþarfir gripanna. Verð á því fóðri hefur því áhrif á hagkvæmni mismunandi jarðræktarskipulags. Ljóst er að með hækkandi kjarnfóðurverði eykst hagkvæmni tíðari endurrækt- unar. Þetta kemur ekki á óvart því að meiri kostnað má leggja í að ná gæðafóðri ef kjamfóðurverð er hátt. Kjörtímakostnaðurinn verður meiri eftir því sem kjarnfóðurverðið verður hærra, en það er í samræmi við það sem búast má við. Hvort þessi áhrif em svo sterk að þau standi undir aukinni vélvæðingu skal ósagt látið en fyrri rannsóknir benda ekki til þess (Eiríkur Blöndal, 1998). Stærðarhagkvæmni í landibúnaði hefur verið mikið til umræðu sam- fara fækkun bænda og stækkun búa sem átt hefur sér stað um nokkurt skeið. Stærðarhagkvæmni í fóður- framleiðslunni byggir helst á betri nýtingu aðfanga á borð við fasta- fjármuni og vinnuafl. Rauntölur benda ekki til þess að afskriftir véla á kúabúum lækki á framleidda ein- ingu með stækkandi búum (Hag- þjónusta landbúnaðarins, 1999). Ef stuðst er við fall afskrifta véla af bústærð kemur ekki fram stærðar- hagkvæmni í útreikningum á fóður- framlagi. Þvert á móti vottar fyrir örlítilli stærðaróhagkæmni á inn- lagðan lítra með stækkandi búum. Lokaorð Hagkvæmni jarðræktar á kúabú- um og samspil hennar við aðra þætti búsins er geysilega flókið rannsóknarefni. Inn í slíka útreikn- inga hljóta að koma óvissuþættir sem tengjast staðbundnum aðstæð- um hvað varðar umhverfí og stjóm- un búsins. Útreikningar á fóður- framlagi gefa ákveðnar vísbending- ar um hagkvæmni mismunandi leiða í búrekstrinum en hafa verður í huga þá þætti sem ekki eru teknir með í slíka útreikninga, s.s. fastan kostnað af byggingum og launa- kostnað. Mikilvægt er að skerpa þær forsendur sem liggja að baki útreikningunum einkum hvað varð- ar vinnuþáttinn og bæta við út- reikningum sem bera saman launa- kostnað við mismunandi fram- leiðsluskipulag. Hugsanlegt er að tengja þessa útreikninga við aðra vinnu sem innt hefur verið af hendi á svipuðum sviðum þannig að til verði öflugt tæki sem nýtist við gerð rekstraráætlana fyrir kúabú. Heimildaskrá Eiríkur Blöndal, 1998. Kjörtfmaáhrif á heyskap. í: Rit Ráðunautafundar 1998, bls. 30-34. Guðni Þorvaldsson og Hólmgeir Bjömsson, 1990. The effects of weath- er on growth, cmde protein and digesti- bility of some grass species in Iceland. Búvísindi 4, 1990, bls. 19-36. Gunnar Olafssson, 1976. Efnainni- hald og meltanleiki ýmissa túngrasa á mismunandi þroskastigi. Fjölrit Rala nr. 42. Gunnar Ríkharðsson, 1994. Áhrif grastegunda og aldurs kúa á át og af- urðir. í: Rit Ráðunautafundar 1994, bls. 143-150. Gunnar Ríkharðsson og Einar Gests- son, 1995. Grænfóður og þurrhey fyrir kýr á fyrsta mjaltaskeiði. í: Rit Ráðu- nautafundar 1995, bls. 128-139. Hagþjónusta landbúnaðarins, 1999. Búreikningar 1998. Hólmgeir Björnsson og Friðrik Pálmason, 1994. Áhrif áburðar og sláttutíma á efnainnihald í grasi. I: Rit Ráðunautafundar 1994, bls. 193-205. Hólmgeir Bjömsson og Jónatan Her- mannsson, 1983. Samanburður á melt- anleika nokkurra túngrasa. I: Rit Ráðu- nautafundar 1983, bls. 145-160. Ingvar Bjömsson, 2000. Er heyið þitt dýrara en kjamfóður?. Freyr, 1. tbl. 96. árg. bls. 12-14. Laufey Bjarnadóttir og Þóroddur Sveinsson, 1999. Áhrif sláttutíma á fóðrunarvirði vallarfoxgras. I: Rit Ráðunautafundar 1999, bls. 164-173. Magnús Oskarsson og Bjami Guð- mundsson, 1971. Rannsóknir á vallar- foxgrasi (Engmo) I Áhrif sláttutíma, köfnunarefnisáburðar og sambýlis við túnvingul á uppskeru og efnamagn vall- arfoxgras og gildi þess til heyverkunar. ísl. landbún. 3, 2 bls. 40-73. Ríkharð Brynjólfsson, 1996. Áhrif áburðartíma, áburðarmagns og sláttu- tíma á uppskeru og efnamagn túngrasa. í: Rit Ráðunautafundar 1996, bls. 113- 123. Sigríður Bjarnadóttir, 1996. Snarrót fyrir mjólkurkýr. I: Rit Ráðunauta- fundar 1996, bls. 206-217. Þóroddur Sveinsson og Gunnar Rík- harðsson, 1995. Vallarfoxgras, vallar- sveifgras og snarrót fyrir mjólkurkýr. 1: Rit Ráðunautafundar 1995, bls. 116- 127. Meðferð svína í ESB verði bætt Evrópsk dýraverndarsamtök að nafni „Eurogroups for Animal Welfare“ hafa snúið sér til yfirmanns matvælasviðs ESB, David Byme, með áskomn um að bæta aðbúnað svína. David Byrne lýsti sig sammála samtökunum og lofaði að vinna að framgangi málsins. Meðal at- hugaverðra atriða nefndi hann að gyltumar væm bundnar í stíum, grísir gengju á rimlagólfi og að augntennur væru klipptar í grís- um. Sumt af þessu er þegar bannað í ýmsum löndum ESB en David Byme vill að bannið gildi í öllum löndum sambandsins. Þess má einnig geta að vís- indanefnd ESB, sem fjallar um heilsu og velferð húsdýra, gaf nýlega út skýrslu þar sem svokallaður „verksmiðjurekstur'* í svínarækt í mörgum löndum sambandsins er gagnrýndur. (Landsbygdens Folk nr. 39/2000). FREYR 11-12/2000 - 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.