Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.12.2000, Qupperneq 32

Freyr - 01.12.2000, Qupperneq 32
bú. Ýmist voru frjótæknir eða dýra- læknar fengnir til þess. Þegar dýra- læknir fangskoðar er algengast að nýta ferð hans með öðru. Hann er þó oftar kallaður til lágu búanna. Meira ber á að einstaka kýr séu skoðaðar á háu búunum á sama tíma og fleiri kýr (flestar, jafnvel allar) eru skoðaðar á lágu búunum. Þessu ber vel saman við mat frjó- tækna. Lágu búin virtust bráðlátari og létu fangskoða um hálfri viku fyrr hjá sér (tæpum 7 vikum eftir sæðingu) í samanburði við háu bú- in þó svo að ekki sé munurinn marktækur. Kvígur Vanfóðrun seinkar kynþroska og getur einnig haft áhrif á starfsemi kynfæranna eftir að kynþroska er náð. Offóðrun á orku getur einnig haft áhrif á frjósemi. Offeitum dýr- um er hætt við að verða ófrjó, gjarnan vegna truflunar á hormóna- kerfinu. Ekki var munur á fóðrun kvíga milli hópa. Á þeim tíma, þar sem þær eru sæddar, var tæpur helming- ur bændanna að velja svipað hey í þær og kýmar. Að öðrum kosti fengu þær laklegra hey eða leifar frá kúnum. Á meðgöngunni fékk heldur stærri hópur laklegra hey og/eða leifar frá kúnum miðað við það sem þær fengu á sæðingartím- anum. Um það bil einni og hálfri viku fyrir burðinn var í rúmum 60% tilfella byrjað að fóðra kvíg- umar með kúnum. Aðlögunartím- inn var heldur styttri hjá lægri hópnum. Á um helming búanna höfðu kvígumar aðgang að stein- efnum, algengastur var saltsteinn- inn. Þar sem hægt var að koma því við var lagt mat á þroska gripanna. Þroski fyrsta kálfs kvígna var held- ur misjafnari meðal lágu búanna í samanburði við kvígur frá háum búum. Gróðurfarið virtist skipta mestu máli þegar kvígur voru settar út á vorin og munur milli hópa var ekki fyrir hendi. Á tæplega fimmtungi bæjanna var það pláss í fjósi sem jafnframt hafði áhrif. Að vori voru kvígumar ýmist á túni, úthaga eða hvoru tveggja. Yfir sumarið var mikill meirihluti þeirra hafður á úthaga en að hausti voru þær á flestum bæjunum hafðar á túnbeit. Þá höfðu þær í um 60% tilvika aðgang að grænfóðri, þar sem þær ýmist voru látnar hreinsa eftir kýrn- ar eða þá haustbærurnar hafðar með kúnum. Að meðaltali komu 10 kvígur inn í framleiðslu á ári. Á flestum bú- anna em kvígurnar í fjósinu en á nokkrum í sér húsi. Margir nota heimanaut á kvígumar, alveg eða að hluta með sæðingum. Aðeins var minna um notkun heimanauta á háu búunum. Á þeim búum sem kvígur voru sæddar var litið eftir beiðsli um það bil tvisvar á dag, háu búin höfðu tilhneigingu til að fara aðeins oftar. Þetta var gjarnan gert um leið og gefið var. Hvað varðar umsjón með eftirliti kom marktækur munur í ljós á milli hóp- anna þar sem beiðsliseftirlitið var meira í höndum sama aðilans hjá háu búunum en dreifðist á fleiri á lágu búunum. Um 60% bændanna fannst kvígurnar halda jafn vel og kýmar. Hinir töldu að kvígumar héldu betur. Langflestir miðuðu við að kvíg- umar fengju við ákveðinn aldur en tóku jafnframt tillit til þroska þeirra og æskilegrar burðardreifingar í fjósi. Miðað var við tæplega 20 mánaða aldur, ívið hærri á háu bú- unum en munurinn ekki marktækur. Vel flestir vildu að kvígurnar bæru að hausti, gjarnan fyrr en kýmar ef um haustburð var að ræða í fjósinu og þær síðustu væru bomar um ára- mótin. Rétt rúm 27% kvígnanna náði ekki fangfestu við 20 mánaða aldurinn (mynd 9) og eitthvað var um förgun vegna þess að þær héldu ekki. Uppgjafaraldurinn var í þeim tilvikum 24-30 mánaða og lágu bú- in höfðu tilhneigingu til að halda lengur í þær. Á um 60% búanna voru kvígurn- ar fangskoðaðar. Lágu búin virtust meðvituð um ástandið þar sem hærra hlutfall þeirra lét fangskoða gripina og kölluðu jafnvel til dýra- lækni til þess. Á þeim búum var líka meirihluti kvígnanna fang- skoðaður en fangskoðunin var meira bundin við einstaka gripi á háu búunum. Þarna var marktækur munur milli hópanna. Talað er um að á bilinu 6-8 vikum eftir sæðingu eigi að vera hægt að meta hvort um fangfestu sé að ræða eða ekki. Bændur voru mjög meðvitaðir um I I % sem ekki festir fang □ % sem fær slysafang Mynd 9. Hlutfall kvígna sem ekki nœr að festa fang við 19,6 mánaða aldurinn, auk Idutfalls kvíga sem festa fang fyrir œskilegan aldur. 32 - FREYR 11-12/2000

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.