Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.2000, Síða 53

Freyr - 01.12.2000, Síða 53
hjá gemlingum er ekki eins mikil og síðar. Hér getur verið um eðlileg lífeðlisfræðileg áhrif að ræða. Niðurstöður skoðanakönnunnar um stöðuna á hollenskum kúabúum Niðurstöður skoðanakönnunar byggja á svörum við mjög ítarleg- um spumingalista frá fast að því þúsund búum. Könnunin er gerð í árslok 1998. A búunum vom að meðaltali rúm- lega 50 mjólkurkýr og landstærð þeirra var að meðaltali um 32 ha. Að meðaltali var burður kvígnanna á þessum búum við 25,6 mánaða aldur. Meirihluti bændanna sagðist hafa skýrar viðmiðanir um það að hverju væri stefnt um aldur kvígn- anna við burð. Yfir helmingur stefndi að burði við tveggja ára ald- ur þó að aðeins 24% þeirra næðu því marki. Á þeim búum, sem höfðu markmið til að stefna að, voru kvígumar raunhæft yngri við burð en á hinum búunum. Bændumir hugleiddu greinilega minna þunga kvígnanna við burð og raunverulegar þungatölur voru aðeins fyrir hendi á rúmu einu pró- senti kúnna. Förgun á kúnum á þessum búum var að jafnaði um 32% á ári. Af kvígunum er um 19% sem er fargað á fyrsta mjólkurskeiði. Ástæður fyrir förgun þeirra eru að um þriðj- ungur fer vegna ófrjósemi og annar þriðjungur vegna ónógra afurða, en hjá fyrstakálfs kvígunum er um 17% förgunar vegna júgurbólgu og þátta sem tengjast júgri og spenum. Ásetningshlutfall á kvígukálfum er það sama og þekkt er hér á landi eða tæp 80% kvígukálfanna eru aldir til ásetnings. Að jafnaði voru ásetningskvíg- urnar teknar af mjólk við 10,4 vikna aldur, en hollenskar ráðlegg- ingar hljóð hins vegar upp á að það skuli gert fyrr eða við 8-9 vikna aldur. Aldur réð mestu um það hvenær farið var að halda kvígunum, en einnig var tekið tillit til þroska þeirra og á 22% búanna var tekið tillit til árstíma við þá ákvörðun. Á nokkuð innan við 20% búanna voru heimanaut notuð fyrir kvígumar. Merkilegustu niðurstöður úr þess- ari könnun meðal bændanna eru þegar kernur að mati bænda á kostn- aði við uppeldi. Um 36% bændanna mátu uppeldiskostnað á kvíguna 1500 hollensk gyllini eða lægri, en höfundur fullyrðir að raunverulegur uppeldiskostnaður við þær aðstæður sem um ræðir sé 2000-2500 gyllini á hvem grip. Höfundur segir þennan kostnað greinilega stórlega vanmetinn og miklu meira en annan kostnað á kúabúunum. Hann segir að flestum sé ljós aukinn kostnaður vegna lengri uppeldistíma þegar kvígurnar eru gerðar eldri. Hitt dyljist flestum að eftir því sem kvígurnar verða eldri við burð, miðað við fast förgunarhlutfall, þurfi fleiri kvígur til endumýjunar. Segir hann að á 100 kúa búi þurfi þannig, miðað við 30% förgunarhlutfall kúnna, sex kvígum fleira til end- umýjunar ef þær em 26 mánaða að meðaltali þegar þær bera fyrsta kálfi í stað 24 mánaða. Hér verður ekki fjallað um hið umfangsmikla líkan sem höfundur hefur byggt upp til að meta mis- munandi valkosti í uppeldinu. Meg- inniðurstaða hans er að hagkvæm- ast sé að stefna að mun yngri kvíg- um í framleiðslunni en nú gerist. Hagkvæmdustu niðurstöðu fær hann með kvígum sem eru tæpra 23 mánaða þegar þær bera fyrsta kálfi. Hann segir að lenging á meðalaldri kvígnanna, þegar þær beri fyrsta kálfi, um einn mánuð lækki meðal- tekjur á dæmigerðu hollensku kúa- búi um rúm 4% á ári. Þessar niðurstöður eru fengnar miðað við dæmigerðar aðstæður í hollenskri mjólkurframleiðslu. Þær verða aldrei skoðaðar sem annað en vísbendingar. Höfundur hafði samt einnig reynt líkanið með gögnum frá Pennsylvaníu í Bandaríkjunum, þar sem beit er mikið notuð og fékk mjög sam- hljóðandi niðurstöður. Lá Lamadýr gæta sauðfjár Lamadýr geta eftir nokkur ár orðið jafn útbreidd í Noregi og smalahundar, að áliti Jan Martin Amemos, dýralæknis og eiganda lamadýra, í Tynset í Noregi, en hann hyggst nú skrifa bók um uppeldi lamadýra. Jan Martin Amemo hefur meiri trú á lamadýrum en hundum til að gæta sauðfjár á beit. Lamadýrið er grasæta eins og féð, það er að- lagað erfiðu umhverfi og samlag- ast auðveldlega fjárhópnum. Lamadýrið heldur hópnum saman og er ágengt gagnvart ógnandi dýmm og mannfólkinu, en í Nor- egi stafar sauðfé á sumarbeit hætta af ýmsum rándýrum, svo sem úlfi, birni og gaupu. í Noregi eru nú um 100 lama- dýr, en einungis 4-5 bændur stunda ræktun á þeim. (Bondebladel nr. 45/2000). Litlar heyrúllur Nokkrir sænskir bændur hafa fundið sér þá aukabúgrein að framleiða litlar plastaðar heyrúll- ur, 55 cm að þvermáli sem vega 40 kg. Kaupendur eru hestaeig- endur sem eiga allt upp í 5-6 hesta. Fyrir þá eru hinar hefð- bundnu rúllur of stórar og fóðrið getur skemmst áður en tekst að nýta það að fullu. Verðið er allt að 1.000 kr. á rúllu og margir hesta- eigendur telja þetta góðan kost, að sögn sænska blaðsins Land. (Bondevennen, nr. 46/2000). FREYR 11-12/2000 - 53

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.