Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1922, Blaðsíða 158
ARSblNG.
123
nefnd til að íhuga málið og gera tillög-
ur í því. Lagði nefndin til að þingið
feli stjórnarnefndinni að hrinda þessu
máli í framkvæmd. Þannig að komið
sé á skiftum námsmanna í milli há-
skóla íslands og háskóla hér í álfu, á
Iíkan hátt og nú á sér stað í milli há-
skóla Norðurálfunnar, og að skorað sé
á nefndannenn Eimskipafél. íslands,
að flytja það mál á Eimskipafélags
fundi, að slíkum stúdentum sé veitt ó-
keypis far báðar leiðir með skipum fé-
lagsins. Yar nefndarálit þetta samþykt
eftir alllangar umræður.
Næst var tekin til umræðu sjóðstofn-
un til islenzkunáms. Var það rætt frá
ýmsum hliðum og að lokum settir 1
nefnd séra Rögnv. Pétursson, Ólafur
Bjarnason og Kristján Vopnfjörð.
Lögðu þeir fram stutt nefndarálit er
bygðist að nokkru leyti á umræðunum:
1. Nefndin ræður fastlega til að slík-
ur sjóður sé stofnaður.
2. Að kosin sé þriggja manna niilli-
þinganefnd, er hafi málið nreð höndum,
semji reglugerð fyrir væntanlegt sam-
þykki næsta þings.
3. Veiti móttöku og safni gjöfum og
peningaloforðum í sjóðinnn á árinu.
A ar nefndarálit þetta samþykt, og 1
milliþinganefndina kosnir þeir séra
Rögnv. Pétursson, Séra Steingr. Thor-
láksson og Arni Eggertsson.
Ný mál. Talað var um rétt erindis-
reka frá deildum og að lögin því við-
víkjandi væru ekki fullskýr. Ennfrem-
ur um ferðakostnað slíkra erindsreka
frá deildum og að lögin því viðvíkjandi
væru ekki fullskýr. Ennfremur um
feröakostnað slíkra erindsreka. En
með því að lagabreytingar þarf við í
báðum þessum atriðum, voru engin á-
kvæöi tekin, en nefndinni falið að gera
sitt bezta i þessu máli.
Asgeir f. Blöndahl bar upp tillögu
til þingsályktunar, er hljóðar svo:
“Það er eindregin ósk þingsins, að
íslenzkir prestar vestan hafs beiti áhrif-
um sínurn hver i sínum söfnuði til þess
að fá vakið almennari áhuga fyrir nyt-
semi þjóðræknisstarfsins á meðal vor.
og hlynni að útbreiðslu félagsins af
fremsta megni.”
.Tillagan var samþykt.
Ásgreir í. Blöndahl gerði viðauka-
tillögu við 2. gr. III. kafla grundvall-
arlaganna. — Viðbótin komi á eftir orð-
unum: “Heiðursfélaga skal kjósa eftir
verðleikum,” og hljóðar svo: “og sé
ekki fleiri en einn heiðursfélagi kjör-
inn ár hvert, skal stjórnarnefndin á-
kveða hver fyrir því verður, ef um
fleiri en einn er að ræða.” —
Klukkan 3 á föstudaginn fóru fram
embættismannakosningar og urðu þess-
ir fyrir kosningu:
Forseti: séra Jónas A. Sigurðsson.
Vara-forseti: Árni Eggertsson.
Skrifari: Gís'li Tónsson.
Vara-skrifari: Ásgeir í Blöndahl.
Féhirðir: Ásm. P. Jóhannsson.
Vara-féh.: Ólafur Bjarnason.
Fjármálaritari: Friðr. Swanson.
Vara-f járm.ritari: Friðr. Guðmunds-
son.
Skjalavörður: Finnur Johnson.
Yfirskoðunarmenn: Jónas Jóhannes-
son, H. S. Bardal.
Stungið var upp á fleirum fyrir vara-
forseta óg fjármálaritara, en allir þeir
er á þingi voru afsökuðu sig, og var því
öll nefndin kosin gagnsóknarlaust.
Að kvöldi hins fyrsta þingdags kom
fjölmenni saman i G. T. salnum og
hlustuðu á langt og snjalt og rnælsku-
rikt erindi forsetans, séra J. A. Sig-
urðssonar, um þjóðræknismál vor. Stoö
erindið yfir frá 8,30 til 10. \ erður
hér ekki reynt að gefa útdrátt úr þvi.
Lhnræður urðu langar, en fyrirlesar-