Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1935, Side 31
Indriði Einarsson
13
III.
Að loknu stúdentsprófi 1872 fór
Indriði til Kaupmannahafnar og
las þar stjórnfræði þar til vorið
1877 að hann tók próf og varð
“kandidat með láði.” Hann fór
ekki alveg tómhendur til Hafnar,
því auk “Hellismanna” hafði hon-
um, vorið sem hann las undir stú-
dentspróf, dottið í hug “Dansinn
í Hruna.” 0g er honum lánaðist
ekki að setja þann leik saman svo
honum líkaði, tók hann til við nýj-
an leik um “Tristan og I.sold” og
skrifaði allmikil drög að þeim leik
sem enn liggja hjá honum í hand-
riti; þótti lionum það efni bera af
“Dansinum í Hruna” eins og hin
glæsilega riddaraöld bar af myrk-
ustu tímum miðalda.
Ehi honum varð ekkert ágengt.
Hin rómantísku hugfóstur hans
króknuðu beinlínis í gjóstri raun-
sæisstefnunnar, sem um það leyti
var að verða allhvass kringum
Brandes, og bráðum átti eftir að
gefa þeim íslenzku Yerðandi-
mönnum byr í seglin. “Raunsæis-
stefnan hafði gufað inn í mig eins
og mann, sem fær kvef af því að
liggja úti um vornótt . . . , eg gat
ekkert af því notað, sem eg liafði
gert og verið að fást við, og þess-
vegna lagði eg “Tristan og ís-
old” alveg á liilluna. Fyrir þetta
hataði eg raunsæisstefnuna, og
hata hana enn, og kenni henni um
að allur skáldskapur er horfinn úr
dönskum bókmentum.”*) Þrátt
fyrir alt hefir Hafnarveran orðið
honum ekki ómerkur skóli, einnig
utan háskólans, því hér kyntist
*)Bréf 2. maí 1929.
hann mörgum góðum mönnum,*)
og hér komst liann í fyrsta sinn í
kynni við regluleg leikhús og sá
þar margt bæði fagurt og lítilsvert.
Eftir prófið 1877 fór hann til
Edinborgar í Skotlandi og hlýddi
þar vetrarlangt á fyrirlestra um
þjóðmegunarfræði; þar gekk liann
og á leikhúsin og sá meðal annars
Sir Henry Irving leika Richard
III., “og er það það mesta sem eg
hefi séð á nokkru leikhúsi. Hann
lagði áherzlu á dauða Richards, og
eg gleymi því aldrei. 1 annað sinn
fór eg úr leikhúsi svo, að mér fanst
þetta vera það mesta í heimi.”**)
Haustið 1878 kom Indriði alfar-
inn heim og var rúmt ár***) á
skrifstofu Árna Thorsteinson
landfógeta. En í ársbyrjun 1880
var liann gerður endurskoðandi
eða revisor landsreikninganna og
var það þar til 1904 að stjórnar-
ráðið var stofnað. Þá vai’ð hann
fulltrúi á fjármálaskrifstofunni ti'.
1909, en eftir það skrifstofustjóri
til 1918, er hann fékk lausn frá
opinberum störfum og gat helgað
sig allan áhugamálum sínum.
Ejnbættisverk Indriða voru alt
annað en auðveld. Landsreikning-
arnir veltust yfir hann eins og
snjóflóð, sem minni maður en liann
hefði sannarlega átt erfitt með að
halda liöfðinu upp úr. Um þrjátíu
og fimm ára skeið sá Indriði um
útgáfu á “Landshagsskýrslum fyr-
<:)Sbr. I. E.: “Frk. Sigríður Helgadóttir”;
Vísir 11. jan. 1928.
**)Bréf 2. maf 1929.
***)pað ár kom út eftir hann í þýðingu:
M. Block: Aðalatriði þjððmegunarfræðinn-
ar. Rvík, Einar pðrðarson 1879.