Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1935, Side 120
Frumbygð og fortíð
Eftir O. T. Johnson.
i.
“Því siöir og hugsanir dagsins í dag
þar drotna meö ósköruö völd,
Sem frumbygöin sprettur upp fortíöarlaus
og fóstruð af samtíðaröld.
Og framförin mikla og menningin hér
viö minningar hefir ei töf,
Ef endistu’ að plægja, þfi akurland fær;
ef uppgefst þú: nafnlausa gröf.”
LjóÖlínur þær birta andans
glöggsýni fjallaskáldsins Steplians
Gr. Steplianssonar. Iiann er hér að
lýsa fortíðarlausri frumbygð Vest-
urál'fu. Sú frumbygð umbunar
endalaust erfiði með efnalegri vel-
megun; en gleymir þeim, er upp-
gefast. Hugsanir dagsins í dag
drotna yfirgnæfanlega í fortíðar-
lausri frumbygð. Engar minning-
ar auðga mannlífið eða upphefja.
Allir liljóta að hugsa eins og ganga
með sama liætti að daglegum verk-
um í þeirri fortíðarlausu samtíc.
Bendir það á standardized þátíðar
menningu Canada og Bandaríkj-
anna. Alþýðuskólar, bókmentir og
stórblöð; alt sameiginlegt og mið-
andi að ‘ ‘ mótun ’ ’ mannlegs anda!
Hugsun skáldsins því rökvís og
róttrýgg.
Vér megum eigi gleyma því, að
Stephan var íslenzkur, að liann sá
umhverfi nýbygðarinnar með ís-
lenzkum augum. Hann saknar for-
tíðar íslands. Var skáld hvort-
tveggja, frumbygðar og fortíðar.
Yfirgripsmestu yrkisefni sækir
hann í fortíð sína og heimfærir við
frumbygðina — samtíð sína. Hann
er dæmi þess anda er þroskast á
nýju sviði við þrótt hins liðna.
Við landnám Ameríku berjast
uppliaflega þrjár meginþjóðir um
yfirráðin, Spánverjar að nokkru,
og Frakkar og Englendingar. Eng-
lendingar eru hlutskarpastir, taka
að lokum öll drotnunarvöld í sínar
liendur á meginlandi' Norður-Ame-
ríku. Úr því gera þeir tilraunir,
að gróðursetja í nýjum jarðvegi
fortíð heimalandsins! Löggjöf og
dómstólar, skólar og* bókmentir, er
gi’ipið úr enskri fortíð og bygt á
brezkum grunni. Um þá nýmenn-
ingu var Stepliani kunnugt og þar
vel vakandi. Hann sá að í raun og
veru var það eðlileg afleiðing af
orsök, úr því liið nýja land er und-
ir veldissprota Englendinga og
skoðast “nýlenda” lieimalandsins.
Landið er með lögum að byggjast,
því mátturinn ræður lögum og lof-
um. Nýmenning sú um leið ensk,
eða brezk.
Sá á fé er fvrst finnur, er oft
orðtak enskra manna. Fundvísir
eru enskir frumbyggjar á alt liið
fémæta. Alt er það tilheyrandi
heimalandi þeirra til að byrja með,
því hér ræðir um brezka nýlendu.
En þegar að lokum Bretar glöggva
sig á því, að Ameríka sé of stór
fyrir þá eina, er innflutningur
annara þjóðflokka leyfður. En
með því skilyrði, að þeir afsegi öll
þegnréttindi í heimalöndum sínum
og* sverjist til þegnhollustu í
brezkri nýlendu. Sökkvi inn í
brezka þjóðheild, gerist brezkir.
Uppreisn er leiddi til stofnsetn-
ingar Bandaríkjanna, er endur-
tekning liins fyrra við innflutning