Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1935, Side 151
Sextánda ársþing Þjóðrœlmisfélagsins
133
verandi fjármálaritara og Jónasi Jónassyni
haldið I tilefni af burtför þeirra til íslands,
og síðast samsæti það er félagið stóð fyrir
til að heiðra herra Svein Thorvaldson í til-
efni af þeirri viðurkenningu, er hann var
sæmdur af Bretakonungi.
pýðingarmesta starf nefndarinnar á árinu
hefir verið útgáfa ungmennablaðsins “Bald-
urbrá.” Er þetta eitt af nauðsynjamálum
Vestur-íslendinga, og ættu þeir að styðja
það mál með ráði og dáð. Petta mál hefir
oft verið rætt á undanförnum þingum, og
nú er það loksins kcynið í framkvæmd.
Undirtektir víðsvegar að, hafa verið svo
góðar, að fyrirtækið hefir fuiikomlega rétt-
lætt sig. Eg efast ekki um að mikið meira
sé hægt að gera til þess að útbreiða blaðið,
og ætti eitthvað að vera gjört í þá átt á þessu
þingi. Engin skýrsla viðvíkjandi blaðinu
verður gefin á þessu þingi, þar sem starfs-
ár þess endar fyrsta maí. En eg skal geta
þess að borgaðir áskrifendur að blaðinu nú
eru 545, og er fullséð um það að pjóðræknis-
félagið þarf að leggja miklu minna af mörk-
um til stuðnings fyrirtækisins heldur en bú-
ist var við i fyrstu. Hefur forseti minst
ítarlega á þetta mál I sinni skýrslu, sem og
önnur mál, er nefndin hefir haft með hönd-
um á árinu.
Eftir því sem eg kynnist meira starfi fé-
lagsins, þá finst mér með ári hverju að það
staðfesti æ betur og betur tilverurétt sinn,
og það er ósk mín og trú að viðurkenning
á starfi þess og tilgangi eigi eftir að festa
rætur á hverju Islenzku heimili I Vestur-
heimi.
Bergthor Emil Johnson, ritari.
pá ias Árni Eggertson féhirðisskýrslu fé-
lagsins, Guðmann Levy fjármálaritara
skýrslu og Sigurður Melsted skjalavarðar-
skýrslu.
Á. P. Jóhannsson lagði til og Rósmund-
ur Árnason studdi, að fjárhagsskýrslu sé
vlsað til 3 manna nefndar til yfirvegunar,
og tilnefni forseti þá nefnd. Samþykt.
Kvaðst forseti skipa I þessa nefnd þeg-
ar væntanleg kjörbréfanefnd hefði lokið
starfi.
Kjörbréfan efnd.
Séra Guðm. Árnason lagði til og Richard
Beck studdi, að forseti skipi þriggja manna
kjörbréfanefnd. Samþykt. í nefndina skip-
aði forseti Richard Beck, Thorstein Gísla-
sqn og Miss Elinu Hall.
Dagskrárnefnd.
Séra Guðm. Árnason lagði til og Rós-
mundur Árnason studdi, að forseti skipi
þriggja manna dagskrárnefnd. Samþykt.
Skipaði forseti í nefndina séra Guðm. Árna-
son, Á. P. Jóhannsson og Rósmund Árna-
son.
B. E. Johnson lagði til og Margrét Byron
studdi, að fundi sé frestað til kl. 1.30, til að
gefa kjörbréfanefnd og dagskrárnefnd tæki-
færi að ljúka starfi. Samþykt.
Fundur hófst að nýju kl. 1.30. Var sið-
asta fundargjörð lesin og samþykt.
Kjörbréfanefnd hafði þá lokið starfi og
var álitið lesið af Richard Beck. Gerði
hann tillögu, studda af Th. Gíslason, að
það sé viðtekið. Samþykt.
Skýrsia kjörliréfanefndar.
Kjörbréfanefnd vill fyrst benda á, að
allir góðir og gildir félagar I deildinni
“Frón” hafa full þingréttindi, einnig að
sjálfsögðu góðir og gildir félagar I aðal-
félaginu. Auk þess bárust nefndinni full-
trúaumboð frá deildunum "Brúin” I Sel-
kirk, Man, “Fjallkonan” I Wynyard, Sask.,
“Iðunn” I Leslie, Sask., og “ísland” í Brown,
Man. Fulltrúar deildarinnar "Brúin” eru
séra Theodore Sigurdsson, með 17 atkvæði,
Thorsteinn S. Thorsteinsson með 16 at-
kvæði og Kristján Pálsson með 16 atkvæði.
Fulltrúardeildarinnar “Fjallkcman” eru Mrs.
Matthildur Friðriksson með 19 atkvæði og
Mrs. Helga Vestdal með 19 atkvæði. Full-
trúi deiildarinnar “Iðunnar” er Mr. Rós-
mundur Árnason, með 20 atkvæði. Fulltrúi
deildarinnar “íslands” er Mr. Thorsteinn
Glslason, með 14 atkvæði.
Á pjóðræknisþingi I Winnipeg 26. febr. 1935,
Richard Beck Elín Uall
Thorst. J. Gísiason.
Voru þá lesnar skýrslur frá deildum, er
hér fylgja:
Skýrsla deildarinnar “ísland,” Brown.
Brown, Man, 23. febr, 1935.
Til forseta pjóðræknisfélags
íslendinga I Vesturheimi.
Kæri herra:—
Deildin “ísland” hér að Brown virðist
vera með furðanlegu fjöri ennþá, þrátt fyrir