Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1935, Síða 153
Sextánda ársþing Þjóðrœknisfélagsins
135
félagar deildarinnar fluttu burt á árinu, al-
farnir til íslands; eru það þau frú Halidóra
Sigurjónsson, er flutti burt sítSastliðið vor
og Júlíus Johnson, er flutti burt síSastliðið
haust. Höfðu þau bæði verið athafnasamir
og áhugarikir félagar, og saknar deildin
þeirra og samstarfi við þá, og óskar þeim
af alhug gæfu og gengis í framtíðinni.
Fundir á árinu hafa verið sex, auk
nefndarfunda, sem hafa verið allmargir.
Samkomur hafa verið fimm á árinu, auk
tveggja skilnaðarsamsæta, er hinum fyr-
nefndu fráfarandi félögum voru haldin. Má
telja íslendingadags hátíðahaldið langmerk-
ustu samkomuna, er haldin hefir verið á ár-
inu. Var til hennar vandað eftir föngum.
Auk hinnar sjálfsögðu ræðu fyrir minni
ísiands, er flutt var af séra Kristni K. Ól-
afssyni, flutti séra Rúnðlfur Marteinsson
ræðu um hinn fyrsta íslendingadag, er
haldinn hefði verið I þessu landi i Milwau-
kee fyrir 60 árum síðan. Sextíu radda söng-
flokkur, undir stjðrn prðf. S. K. Hall frá
Winnipeg, söng marga af okkar gömlu og
kæru íslenzku söngvum og ennfremur söng
frú Sigríður Hall einsöng. Var yfir höfuð
gjörður hinn bezti rðmur að samkomunni
allri, og vill deildin þakka öllum þeim, sem
hjálpuðu til að gjöra “daginn” ánægjuleg-
an.
Ágæta gesti bar hér að garði síðastliðið
haust. Voru það þeir Dr. Rögnvaldur Pét-
ursson, herra Ásmundur P. Jðhannsson og
séra Jako,b Jónsson. Fluttu þeir allir hér
frððleg og skemtileg erindi á samkomu, er
haldin var I tilefni af komu þeirra, og hafi
þeir allir hinar beztu þakkir fyrir.
Félagatala er svipuð c,g i fyrra, er síð-
asta skýrsla var gjörð. Munu þá hafa ver-
ið 43 fullgildir félagar, en nú eru taldir 46
eða 47.
Tilsögn I íslenzku var hafin i desember
síðastliðnum. Hefir Grímur Laxdal tilsögn-
ina á hendi, og fer hún fram í einu her-
bergi barnaskðla bæjarins. Ennfremur hefir
Mrs. Th. Jðnasson tekið að sér að segja
þeim börnum til, sem ekki þekkja stafina,
og veitir hún þá tilsögn heima hjá sér.
Láta þau bæði vel yfir árangrinum og finst
hann fremri vonum. Milli 30 og 40 börn
hafa hagnýtt sér þessa tilsögn.
Bðkasafn deildarinnar fer smátt og smátt
vaxandi. Er á hverju ári varið nokkru fé
til bðkakaupa, og bðkbands. Hefir Ólafur
Hall verið bókavörður félagsins síðan bðka-
safnið var stofnað, og er hann hinn reglu-
samasti og ágætasti maður við það starf, og
verðskuldar hinar beztu þakkir fyrir.
Örðuglega gengur okkur að fá yngra fólk-
ið til að taka nokkurn verulegan þátt í
starfsemi deildarinnar, eða fá nokkurn veru-
legan áhuga fyrir qkkar íslenzku félagsmál-
um. Er það vafalaust okkar eigin klaufa-
skap og samtakaleysi að kenna. En ekki
verður islenzkt félagslif langlíft meðal vor,
ef yngra fðlkið álítur ekki ðmaksins vert
að taka nokkurn þátt i því.
pað er fremur lítil eftirsðkn eftir em-
bættum í deildinni hér. Lendir það lengst
af á sama fólkinu, að hafa félagsstjórnina á
hendi, af þvi engir aðrir fást til að taka það
að sér.
Núverandi embættismenn deildarinnar eru
þessir:
Forseti Jðn Jðhannsson, vara-forseti Árni
Sigurðsson, ritari Guðm. Goodman, vara-
ritari Sigurður Johnson, féhirðir Gunnar
Jóhannsson, vara-féhirðir Valdimar John-
son, meðráðendur Mrs. Helga Vestdal og
Mrs. V. Baldvinssun, bókavörður ólafur
Hall.
Með beztu óskum um ánægjulega sam-
vinnu á þinginu og heilavænlegan árangur
af starfinu.
Yðar með vinsemd,
Jón Jóhannsson.
Skýrsla deildarinnar “Brúin”, Selkirlc,
fyrir árið 1934.
Deild þessi telur nú 54 fullorðna meðlimi.
Átta starfs og skemtifundir voru haldnir á
árinu. í nóvember fór stjórnarnefnd deiid-
arinnar fram á það við stjórn aðalfélagsins
að fá séra Jakob Jðnsson til að flytja erindi
fyrir íslendinga I Selkirk, og eins og að
undanförnu var stjðrnarnefndin fús til þess;
svo 11. desember komu, ásamt Séra Jakobi
Jónssyni, þeir J. J. Bíldfell forseti pjðð-
ræknisfélagsins, Ásmundur P. Jðhannsson,
Árni Eggertson, Bergþór E. Jojhnson og
fleiri. Allir tilgreindir ávörpuðu samkom-
una. Séra Jakob Jónsson flutti bæði frðð-