Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1935, Síða 160
142
Tímarit Þjóðrœhnisfélags íslendinga
laus. Gjörði þá R. Árnason tillögu og Jakob
Jðnssc^n studdi að álitið sé viðtekið með
áorðnum breytingum. Samþykt.
Frœðslumál.
Álitið lesið af Richard Beck og samþykt
ðbreytt.
Alit frœðslumálancfndar.
Nefndin leggur til, að eftirfarandi tillög-
ur séu samþyktar:
1. pjóðræknisfélagið haldi áfram að
styðja að kenslu í íslenzkri tungu, ennfrem-
ur sögu íslands og bðkmentum, og vinni
áfram að því að börn og unglingar iðki upp-
lestur og söng á íslenzku, þar eð slíkt hefir
gefist vel.
2. pingið felur stjðrninni að hvetja til
þess, að vestur-Islenzkum æskulýð sé veitt
meiri fræðsla um landafræði íslands og sögu
I aðaldráttum.
3. Stjórnarnefndin leiðbeini einstakling-
um og deildum um val og útvegun hentugra
íslenzkra kenslu- og söngbðka, og leiti I því
efni, ef þörf gjörðist, aðstoðar hjá fræðslu-
málastjðra Islands.
4. pingið þakkar bæði kennurum og
þeim öðrum, sem stutt hafa að tslenzku-
kenslu I Winnipeg og annarsstaðar, svo og
útgefendum og öðrum stuðningsmönnum
barnablaðsins “Baldursbrá” fyrir vel unnið
starf.
27. febr. 1935.
Jakoð Jónsson Margrét Ófeigsson
Richard Beck.
íþróttamál—Nefndarálit.
Nefndin álítur að núverandi reglur fyrir
samkepni um hockey-bikar pjóðræknisfé-
lagsins hafi ekki náð samúð íslendinga
yfirleitt, sökum þess að of fáir af þátttak-
endum hafa verið af Islenzkum stofni, þá
leyfir nefndin sér að leggja til:
1. Að ekki færri en 7 af hverjum leik-
flokki er þátt tekur I samkepni um nefndan
bikar skuli vera af íslenzkum ættum.
2. Að enginn af þátttakendum sé eldri
en 18 ára.
Th. Tliorfinssson Ouðmann Levy
Tli. S. Tliorsteinsson.
Álitið lesið af Thorláki Thorfinnssyni, og
rætt lið fyrir lið.
Við fyrsta lið gerði Ari Magnússoji
breytingartillögu studda af S. Vilhjálmssyni,
að tölunni 7 sé breytt I 3. Var breytingar-
tillagan feld. Var þá fyrsti liður samþykt-
ur ðbreyttur.
Annar liður. Breytingartillaga Ari Magn-
ússon og Kristján Pálsson að aldurstakmark
sé fært upp I 23 ár. Var sú breytingartil-
laga samþykt.
Rðsmundur Árnason lagði til og Mrs. B.
E. Johnson studdi, að nefndarálitið sé við-
tekið með áorðnum breytingum. Samþykt.
Úthreiðlumál.
Skýrsla úthreiðslunefndar—
1. Nefndin leggur til að þingið votti
stjðrnarnefnd félagsins þakklæti fyrir það
starf, er unnið hefir verið I útbreiðslumál-
um.
2. Nefndin álítur að heimsðknir til deilda
hafi borið gððan árangur og leggur því til
að stjðrnarnefndin annist um slíkar lieim-
sóknir sem oftast.
3. Nefndin leggur enn fremur til að sér-
stök áherzla sé lögð á að stofna nýjar deild.
ir I þeim íslenzkum bygðum, er ekki hafa
starfandi deildir, og að sendir verði út I þær
bygðir, hæfir menn, að koma þeim málum I
framkvæmd.
4. Nefndin lýsir ánægju sinni yfir stofn-
un barnablaðsins “Baldursbrár” sem hún
telur hið mesta framfaraspor I þjóðræknis-
málum, og álítur að félagið sé I mikilli
þakklætisskuld við þá alla, sem unnið hafa
að stofnun blaðsins, útgáfu þess, og út-
breiðslu.
5. Nefndin leggur til að reynt verði að
stofna unglingafélag eða félög til viðhalds
og eflingar Islenzkum bókmentum og öðrum
verðmætum I íslenzkum menningararfi.
Megi störf slíkra félaga fara fram á ensku,
og séu félög þessi I samvinnu við aðalfé-
lagið og undir umsjðn þess.
li. Tlieo. Sigurðsson J. K. Jónasson
Rósm. Árnason Th. S. Tliorsteinsson
Matthildur Frederickson.
Álitið lesið af séra B. Thedore Sigurðssyni,
og var tekið fyrir, lið fyrir lið. Voru allir
liðirnir samþyktir ðbreyttir og gjörði þá
Richard Beck tillögu og Á. P. Jðhannsson
studdi, að nefndarálitið sé viðtekið. Sam-
þykt.