Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1935, Qupperneq 161
Sextánda ársþing Þjóðrœknisfélagsins
143
Bókasafnsmál.
Fjármálanefndin hefir íhugað skýrslu
bókasafnsnefndarinnar; getur hún ekki fall-
ist á að unt sé að þessu sinni að verja fé
úr sjóði félagsins, til nýrra bókakaupa fyrir
deildina Frón sérstaklega, en aftur á móti
viljum við leggja til að það sem inn kann að
hafa komið af seldum Tímaritum á íslandi,
f s.l. tvö ár, sé heimilað að verja til nýrra
bókakaupa.
Með þessum áorðnu breytingum mælum
við með að skýrslan sé viðtekin og samþykt.
Á pjóðræknisþingi 27. febr. 1935.
-•í. P. Jóhannsson Kristján Pálsson
Thorst. J. Gíslason.
Var fjármálanefndarálitið lesið í því máli
sem hér fylgir. Var sú breyting er fjár-
málanefndin fór fram á samþykt. Var þá
nefndarálit í Bókasafnsmálinu samþykt með
tillögu frá Richard Beck, er var studd af
Á. P. Jóhannssyni.
Útgáfumál.
Nefndarálit í útgáfumálinu—■
Nefndin leggur til:
1. Að útgáfu Tímarits pjóðræknisfélags-
ins verði haldið áfram eins og að undan-
förnu, og felur stjórnarnefndinni að sjá um
útgáfuna.
2. Nefndin telur að með útgáfu barna-
blaðsins "Baidursbrá” sé þýðingarmikið
spor stigið til viðhalds íslenzku þjóðerni
hér í Vesturheimi, og mælir með, að stjórn-
arnefndinni sé falið að halda áfram útgáfu
þess.
3. pingið tjáir þeim, sem starfað hafa
að útgáfu þessara rita þakklæti fyrir vel
unnið starf.
Winnipeg 27. febr., 1935.
Guðm. Árnason Árni Eggertsson
B. Theo. Sigurðsson.
Var álitið lesið af séra Guðm. Árnasyni og
samþykt óbreytt.
Öll nefndarálit sem voru reiðubúin voru
nú afgreidd og sagði forseti að ef einhverjir
hefðu mál að flytja, væri nú tækifæri.
Nikulás Ottenson afhenti þá bókasafni fé-
lagsins bókagjöf. Einnig séra Guðm. Árna-
scgi fyrir hönd Jóns Kristjánssonar að
Lundar. Voru báðar þessar gjafir þakkað-
ar af þinginu.
pá gat forseti þess að mætur gestur væri
staddur á þingi og bað hann Guðmund dóm-
ara Grímson að segja nokkur orð til þings-
ins. Lét dómarinn ánægju sína I ljósi yfir að
hafa getað komið á þingið og heilsað upp
á gamla kunningja. Var nokkur tími eftir
enn og bauð forseti þá fieirum að taka til
máls. Virtust þá margir hafa ræður á reið-
um höndum og tóku til máls Dr. Ófeigur
ófeigsson, Richard Beck, séra Jakob Jóns-
son, Á. P. Jóhannsson og J. J. Bíldfell. Voru
þetta alt snjallar og örfandi ræður og fjöll-
uðu um þjóðernis- og samvinnumál. Er
hér var komið gerði Á. P. Jóhannsson tillögu
og séra Guðm. Árnason studdi, að fundi sé
frestað tii kl. 10 að morgni. Samþykt.
Á miðvikudagskvöldið 27. febrúar var hið
árlega fslendingfunót deildarinnar Frón
haldið í Goodtemplarahúsinu. Var alveg
húsfyllir og fór samkqman hið bezta fram.
Forseti setti fund að nýju kl. 10.30 á
fimtudagsmorgun. Var síðasta fundargjörð
lesin Qg samþykt.
pingmálanefndar álit.
Nefndin leggur tii að þingið tjái skáldinu
Kristjáni N. Júlíus þakkir fyrir þann skerf,
sem hann hefir lagt til vestur-íslenzkra
bókmenta og sendi honum heillaóskir á 75
ára afmæli hans, sem haldið verður um 6.
apríl næstkomandi. Ritara sé falið að senda
hlutaðeiganda þessar afmæliskveðjur.
Nefndin leggur til, að þingið samþykki
heillaóskir til Andrésar J. Skagfeld á Oak
Point, og feli ritara að senda honum þær á
80 ára afmæli hans, 28. marz næstkomandi.
Samkvæmt tilmælum sem fram hafa kom-
ið, um það að skrá sú af enskum ritum um
íslenzk efni, sem próf. Richard Beck hefir
samið fyrir félagið verði birt innan skamms,
svö að hún komi að notum þeim, er vilja
afla sér bóka eftir henni, leggur nefndin til
að væntanlegri stjórnarnefnd sé falið málið
til fyrirgreiðslu.
S. Vilhjálmsson lagði til og Árni Eggert-
son studdi, að fyrsta tillaga nefndarinnar sé
viðtekin. Samþykt.
Önnur tilaga: Árni Eggertson lagði til og
Loftur Matthews studdi, að önnur tillaga sé
viðtekin. Samþykt.
priðja tillaga: Guðmann Levy lagðl til
og Rósmundur Árnason studdi, að þriðja til-
laga sé viðtekin. Samþykt.