Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Page 60

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Page 60
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA 58 Það er um sólaruppkomu og meira en helmingur af sólinni er komið upp fyrir sjóndeildarhringinn. Sol- argeislarnir breiðast eins og ótelj- andi ljósfingur upp eftir himin- hvolfinu og djúpum roða slær á sjóinn. Þá sést hvar skip kemur siglandi frá austri; það hefir skáldið hugsað sér að flytti Leif Eiríksson á leið til Vesturheims. Hægra meg- in sést út í gegnum stórar dyr. Það er kvöld og heiðskír, stirndur him- inn; sjöstjarnan sést greinilega. Við dyrnar situr kona (gyðja) með bók fyrir framan sig og er að skrifa. Það er persónugerfi fortíðarinnar og er hún að ljúka við að skrifa sögu sína og reikninga. Hinum megin sést út um aðrar stórar dyr og þar sést önnur kona (gyðja). Hún er ung og glæsileg, stendur og horfir beint fram undan sér ákveð- in og einarðleg; það er framtíðin. Það er eins og hún vilji segja: „Hvernig er nú hér umhorfs? Ég kvað eiga að taka hér við stjórn og búsforráðum“. Uppi yfir þessum hluta myndarinnar og þvert yfir alla kápuna sjást níu tjöld, öll að nokkru dregin til hliðar, nema miðtjaldið. Þetta eru tjöldin fyrir dyrum hinna níu himna, sem forntrúin getur um. Neðan undir þessum tjöldum er bogabrú; endarnir á henni eru báð- ir huldir á bak við ystu tjöldin. Brúin er „Bifröst“ (Regnboginn). Neðan undir „Bifröst“ er bogalína í rúnaletri; það eru þessi orð: „Ár vas alda“. Eru það fyrstu orðin í þriðja erindinu í „Völuspá11. — Fleira er í þessari skáldmynd, en þetta nægir til þess að sýna og sann- færa um það, að hér er um meira en fallegt „útflúr“ og „pírumpár11 að ræða. Það er stórfengileg hug- sjón, sem rís upp í huga skáldsins, og listamaðurinn færir hana í þann búning að hún birtist einnig öðrum, þótt þeir sjái hana ekki eins full- komlega og hann sjálfur. Þ. Þ. Þorsteinsson var einn þeirra, sem hér stofnuðu „Hagyrðingafé- lag“ stuttu eftir aldamótin. Hann var þá nýlega kominn heiman frá Islandi; gullfallegur maður og skemtilegur. Þegar ég sá hann fyrst datt mér í hug þessi vísuhelmingur eftir Símon Dalaskáld, þar sem hann er að lýsa Kjartani Ólafssyni: „Gullbjart hár um herðarnar hrökk í bárum niður“. Á meðan félagið lifði, var Þor- steinn einn af stoðum þess og stólp- um. Ég varð þá sérstaklega hrifinn af einu kvæði, sem hann las upp á fundi félagsins, og mér hefir altaf þótt mikið til þess koma. Kvæðið heitir „Órar“ og er fyrsta erindið þannig: „Mig hefir altaf langað, langað líða’ á vængjum þangað, þangað, þar sem best fá angað, angað unaðsblóm í fögrum reit — þar sem enginn, enginn veit. Mig hefir altaf langað, langað lífið rétt að skilja — Hulda vill hylja“. Skáldið hugsar og hugsar; spyr og spyr en fær ekkert svar. Sálin svífur leitandi út í og út um ómælis geiminn; leitar og leitar, en finnur ekki það, sem hún þráir eða leitar að. Loksins snýr hún aftur heim til
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.