Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Page 67

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Page 67
LJÓÐSKÁLDIÐ JAKOB JÓH. SMÁRI, SEXTUGUR 65 haldið sér opinni hér í kulda fá- mennis og hríðum daglegs strits, sem hefir í sjálfri sér sitt afmarkaða hitastig, hvað sem á bjátar“. (Eim- reiðin, 1920). Með þessari kvæðabók sinni sýndi höfundurinn það ótvírætt, að hann er frábærlega ljóðrænt skáld, gædd- ur þeim fágæta hæfileika, að geta klætt í ljóðrænan búning hvort held- ur eru náttúrulýsingar, ástarjátn- ingar eða íhuganir um dýpstu rök og ráðgátur tilverunnar. Náttúrufegurð mikil er, eins og kunnugt er, í átthögum Smára í Dölum vestur, og því eigi að efa, að þar hafi drjúgum þróast í brjósti hans sú djúpstæða ást á náttúrunni, í öllum myndum hennar, sem er annað megineinkenni ljóða hans. Honum verða, að vonum, fagrar æskustöðvarnar efni þýðra ljóða, eins og kvæðin „Haukadalsvatn“ og „Dalaóður“ bera órækan vott; en hið fyrra, sem er sonnetta og bæði um það ljóðaform og málfar mjög einkennandi fyrir skáldið, er á þessa leið: «Sólskin og stormur ýfa Vatnsins öldu. Ógnbjartur morgunljómi á gulum ströndum. Skafheiðríkt norðrið blánar bliki köldu. Brúnfölvar heiðar lúta að rauðum söndum. Fjarlœgar gnípur taka himin höndum. Hjarnbreiður leiftra, er næturþokur földu. Haustsólin sendir langt úr austur- löndum. logandi spjót á blakka kletta- skjöldu. — Sólskin og stormur! Ykkur ann ég mest, aflið og birtan styrkja sálu mína. Leiði þið mig, er hinsta sólin sest, þangað sem eilíf uppheimsljósin skína. í sól og stormi vil ég aftur vakna, en Vatnsins bláa mun ég ætíð sakna“. Og til hinna fögru og hugum- kæru átthaga skáldsins eiga einnig rætur sínar að rekja sum af allra fegurstu kvæðunum í bókinni, en það er „Sonnettusveigur til íslands“, sannkallaður „dýrðaróður um ís- lenska náttúru“, og verður eftirfar- andi ljóðgrein úr þeim listofna söngvasveig að nægja sem dæmi: „Ég kyssi mjúkt þá moldu, sem mig ól og mínum huga svip og festu gaf. Á meðan ennþá ómeðvita ég svaf, mín örlög merkti’ hún sínum töfrastaf. Þótt ýmislega auðnu velti hjól, og oft ég megi þrá mitt fjallaskjól, ég bið að varpi íslands sumarsól þeim síðsta geisla á lífs míns bláa haf. — Þá vil ég liggja í hlé við grœnan hól með hrískjarr yfir mér og smáleit blóm, við lóusöng og svalra lœkja óm. Á meðan blómgast lönd og hrærast höf, skal altaf hvelfast yfir minni gröf hið bláa himinfang og síung sól.“ Sonnettuflokkur þessi og aðrar bestu sonnetturnar í safninu sýndu það, hve snjall höfundurinn var þá
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.