Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Page 69

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Page 69
LJÓÐSKÁLDIÐ JAKOB JÓH. SMÁRI, SEXTUGUR 67 Kóparnir móka’ á sólskinsheitum söndum. Siljurglit liggur eftir firði mjóum. Rauðbjörmuð fjöllin stara út frá ströndum steinhljóð á blámann yfir fjærstu sjóum“. En þrátt fyrir hinn ríka hæfileika sinn til að lýsa fjölbreytni náttúr- unnar, tign hennar og svipbrigðum á mismunandi tíma dags og árstíð- um, í litauðugum og lífrænum myndum, er Smári miklu fremur skáld hins innra en hins ytra. Dul- speki forn og ný og ýmsar hinar nýrri sálræktarstefnur hafa stórum mótað lífsskoðun hans, enda bera kvæði hans þess ríkan vott; hið dul- ræna og draumræna eru þar djúpir og seiðandi undirstraumar; andlegu hliðinni snúið upp, þó um hlutræn efni sé að ræða. Sonnettunni „Sól- skinsdagur“ lýkur t. d. með þessum ljóðlínum: „Út við sjónhring sól- skinslöndin bíða, sumarmóðu hjúp- uð gullnum draumi“. Margar aðrar fagrar og prýðisvel ortar sonnettur eru í bókinni, en „Þingvellir" ber þó af þeim öllum, enda er það kvæði hreinasta perla; þar sameinast allir bestu eiginleikar skáldsins: formfágun, mynda auð- legð og innsæi: >,Sólskinið titrar hægt um hamra’ og gjár, en handan vatnsins sveipast fjöllin móðu. Himininn breiðir faðm jafn-fagur- blár, sem fyrst, er menn um þessa velli tróðu. Ofif hingað mændu eitt sinn allra þrár, °tti og von á þessum steinum glóðu; og þetta berg var eins og ólgusjár, — þar allir landsins straumar saman flóðu. Minning um grimd og göfgi, þrek og sár, geymist hér, þar sem heilög, véin stóðu, — höfðingjans stolt og tötraþrælsins tár, sem tími’ og dauði í sama köstinn hlóðu. Nú heyri’ ég minnar þjóðar þúsund ár sem þyt í laufi’ á sumarkvöldi hljóðu“. Mörg önnur ágæt kvæði eru í um- ræddri ljóðabók, svo sem „Minning- ar“ og „Drotning Berglandsins“, framúrskarandi fagurt kvæði. Gull- fallegt er einnig kvæðið til Einars H. Kvaran, þó Smári nái sér jafn- aðarlega best niðri í geðhrifaljóðum. Loks eru í safninu vandaðar og lipr- ar þýðingar á nokkrum erlendum úrvalskvæðum, t. d. „Dexippos" eftir V. Rydberg og „Ef“ eftir R. Kipling. Þriðja og fram að þessum tíma seinasta kvæðabók Smára, Undir sól að sjá (1939), sem kom út á fimm- tugsafmæli hans, bar því enn nýjan vott, hve kvæði hans eru í heild sinni framúrskarandi ljóðræn, og sýndi það jafnframt, að í þeim gæt- ir hreint ekki lítillar fjölbreytni, eins og Sveinn Sigurðsson ritstjóri lagði réttilega áherslu á í dómi sín- um um bókina: „Flest fyrirbrigði daglegs lífs verða honum yrkisefni. Hann kveður um sólina og vorið, sumarið og fölva haustsins, vetur- inn og válynd veður myrkra skamm- degisnótta, og hann kveður um un- að bjartra morgna og dulræna feg-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.