Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Page 71

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Page 71
LJÓÐSKÁLDIÐ JAKOB JÓH. SMÁRI, SEXTUGUR 69 spekingana dr. Carl du Prel og danska sálræktarmanninn dr. Ernst Möller, d. 1916 (einkum bók hans um „Indrestyre“, 1914). Annars hefi ég alla daga haft áhuga á ýmsum efnum fyrir utan það, er ég taldi áðan, svo sem málfræði, mannfræði, sagnfræði o. fl.“ Og kvæði Smára bera því einnig órækan vott, að lifandi vatn úr mörgum áttum hefir frjóvgað hug- arlönd hans. Vissulega er hann eigi eins þróttmikið og stórbrotið skáld eins og sumir íslenskir samtíðar- menn hans; í þeim efnum er t. d. mikið djúp staðfest milli hans og Jakobs Thorarensen. En kvæði Smára eru í heild sinni óvenjulega listræn og aðlaðandi; enginn fær þess dulist, að þar er sann-ljóðrænt &káld að verki, skáld, sem fágar bæði málfar sitt og ljóðaform; skáld, sem er gætt fágætu innsæi og víð- feðmri samúð með öllu, sem lifir, finnur návist guðdómsins í smæsta blómi og ber í brjósti órofatrú á lokasigur hinna góðu afla í tilver- unni. I látleysi kvæða Smára leynist þessvegna ósjaldan meiri dýpt en virðast kann við fyrstu sýn. Það var einmitt þetta, sem Jón skáld Magn- ússon hafði í huga, er hann fór eftir- farandi orðum um síðustu kvæða- bók Smára: „Honum hefir oftast verið fyrir það hrósað, að ljóð hans væru fáguð og formfögur, en hinu má bæta við, að þau eru ekki jafn auðlesin og þau eru yfirlætislaus“ (Skírnir, 1940). Eitt er víst, að hann hefir ort sum ljóðrænustu kvæðin í íslenskum nútíðarskáldskap. Hugðarefnum Jakobs Jóh. Smára og ljóðlist verður eigi í fáum orðum betur lýst heldur en í þessum erind- um úr kvæði hans um Jóhannes list- málara Kjarval: ,.Þú horfir langt inn í huliðs-lönd, þann heirn, þar sem sálirnar húa. Þú skygndist á hak við skuggans rönd, sem skýlir grátandi, naktri önd, og efnisins höfugu hraustu hönd sem boðberi þeirra, er trúa. Því list þín er draumur um dúlinn geim, um dögun á eftir kveldi. Þú lœtur œ óma þann lita-hreim, sem laðar og dregur frá veraldar sveim og kallar á sálirnar hljóðar heim í heilagrar dýrðar veldi“.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.