Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Page 76

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Page 76
74 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA in rök að styðjast. Guðrún frænka hans tók sér ekki fyrir hendur, að safna kvæðum Hallgríms, þegar hún var á íslandi 1927, né heldur af- henti séra Sigurður Gunnarsson henni nokkuð af verkum hans. Fyr- ir þessu hefi ég gjört frekari grein í bréfi til Þorsteins M. Jónssonar, annars ritstjóra þessara bóka. Ekki er það ætlun mín að telja upp eða rekja alt, sem í þessum bók- um stendur, enda hafa aðrir skrifað um þær áður. 1 þess stað ætla ég að hinkra ögn við í heiðinni, því hún stendur mér næst • hjarta. 1 henni stóð vagga mín og þar sleit ég barns- skónum. Mig langar því til að sitja og rabba við Dóra um stund um þann hluta heiðarinnar, sem ég þekti best. Ekkert, sem ég kann að segja, má skoðast sem aðfinslur, til þess þykir mér of vænt um þetta verk hans. Það verður meira líkt endurminningum, sem rifjast upp, og ef til vill viðbætur. Auðséð er að höf. hefir ferðast um heiðina. Hálsar, dalir og fell, móar og flóar, stöðuvötn, ár og lækir birt- ast ljóslifandi. T. d. er upptökum Gestreiðarstaðakvíslar lýst svo grandgæfilega, að Ranalækinn ein- an vantar, og gæti það þó verið sama kvíslin, sem hann segir að falli vestur í milli Langahryggs og Háreksstaðahálss. Háreksstaðakvísl- in var fyrir eina tíð nærri eins vatns- mikil og hin, en svo þurkuðu land- brot og sandfok upp að mestu sum- ar af uppsprettum hennar. Lækirn- ir, sem klufust um Hlíðarendann, minkuðu um helming, og kvíslarn- ar um Þrívörðuhálsinn og Skolla- grenisásinn hurfu í sandinn, nema í vorleysingum. Jöfnu vatnsmagni héldu Háfslækurinn, sem kom úr Háfsvatni eða Skjaldklofavatni og flóunum þar í kring, Fagrahvamma- lækur, spöl norðan við Lindarsel, sem kom úr vesturflóunum sunnan við Hálsinn, Skipalækur úr Skipa- tjörn og Efriflóum í austur frá Há- reksstöðum, ennfremur Myllulæk- urinn. Mikið af afrensli flóanna á- samt lækjunum úr Stórhólmavatni og Langavatni (Hólmavatni) féll til Sauðár, út Sauðárdal og til Hofsár norðan við Bruna. í milli Langa- vatns og Geldingavatns er örmjór melhryggur, en afrensli Geldinga- vatns er til Tunguár og þaðan í Hofsá. Skjaldklofavatn var eina vatnið í Háreksstaðalandi, sem eng- in veiði var í, og mun það hafa staf- að af því, að í kvíslinni, austur frá Lindarseli, er lágur foss, sem fell- ur í milli kletta, og stöðvar alla sil- ungsgöngu. All-ólíkt fiskakyn var í hverju vatni, að útliti og bragði, og var þó afrensli þeirra til sömu straumvatna. í Stórhólmavatni er hinn fagri hólmi, er arfsögnin lætur Skjöldólf landnámsmann vera heygðan (sjá bls. 42 í seinna bind- inu). Jón, næstelsti bróðir minn, byrjaði að grafa í hauginn, sem er í lögun eins og bátur á hvolfi, en það var of snemma sumars, og kom hann því brátt í klaka. Skömmu síðar dó hann og fólk okkar flutti burt. Á bls. 259 segir, að austan í Urð- arhlíð, sem gengur suður úr Sæ- nautafelli, sé hið eina klettabelti, sem sýnilegt sé í Heiðinni. í Há- reksstaðalandi eru sýnilegir klettar á nokkrum stöðum. Dritfellið er hátt klettabelti á báðar hliðar, og nakin klöpp að ofan. Þar verpa hrafnar á vorin, og sást dritur þeirra greini- lega á bergsnösunum. Fram úr
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.