Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1954, Page 50

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1954, Page 50
32 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA Því næst er saga Olafs konungs hins helga Haraldssonar meður öllum sínum þáttum og þar meður sögur Orkneyja jarla. Þá er Sverris saga, þar eftir Hákonar saga gamla með sögu Magnúsar konungs, sonar hans. Þá er þáttur Einars Sokka- sonar af Grænlandi, þar næst frá Helga og Úlfi hinum illa. Þá hefur upp annál, þegar heimurinn er skaptur. Tekur hann allt til þess, er nú er komið heimsstöðunni. Hefir skrifað Jón prestur Þórðarson frá Eiríki víðförla og Ólafs sögurnar báðar, en Magnús prestur Þórhalls- son hefir skrifað upp þaðan og svo það, er fyrr er skrifað, og lýst alla. Gleðji guð allsvaldandi þá, er skrif- uðu, og þann, er fyrir sagði, og jómfrú Sancta María. Hér er að sjálfsögðu ekki talið efni viðbótarinnar, er kom til miklu seinna, þ. e. saga Magnúsar góða og Haralds harðráða og nokkrir þættir að auki. Er þetta allt geysilegt efni, ekki sízt Ólafs sögurnar, enda hlaðið utan á þær öllu því efni, er með nokkru móti varð við þær tengt, stundum heilum sögum, svo sem Jómsvíkinga sögu, Færeyinga sögu og Fóstbræðra sögu. Hefur ritaran- um, sr. Jóni Þórðarsyni, þótt á stundum nóg um, eins og sést á formála hans fyrir einum þættin- um. En þar segir sr. Jón: Nú þó að margar ræður og frá- sagnir sé ritaðar í þessu máli, þær að eigi þykja mjög til heyra sögu Ólafs Tryggvasonar, þá þarf það eigi að undrast, því að svo sem rennandi vötn fljóta af ýmissum uppsprettum og koma öll í einn stað niður, til þeirrar sömu líkingar hafa þessar frásagnir af ýmislegu upphafi eitt endimark: að ryðja til atburða, sem Ólafur konungur Tryggvason verður við staddur eður menn hans. Það er ekki ætlun mín að rekja hér efni Flateyjarbókar, því að um það mætti semja margar greinar. Ég valdi hana aðeins sem sérkennilegan og glæsilegan fulltrúa íslenzkra handrita, sem dæmi um framtak og stórhug Víðidalstungubóndans unga, Jóns Hákonarsonar, sem réðst í það 32 ára gamall að láta rita Flateyjar- bók, og þótti samt ekki nóg komið, heldur lét og rita annað geysistórt handrit, er kallað hefur verið Vatnshyrna og er nú að mestu glatað. En af eftirritum og öðrum vitnisburðum má ráða, að á þeirri bók hafi verið hvorki meira né minna en 14 íslendinga sögur og þættir. Jón Hákonarson er einn af stólp- unum undir þeirri brú, er vér köll- um íslenzka menningu. Hann stend- ur þar, sem straumurinn er einna þyngstur, í lok 14. aldar. En rétt eftir aldamótin 1400, þegar Jón er á bezta aldri, dynur Svartidauði yfir og fellir á skömmum tíma nær þriðjung landsmanna Virðist allt benda til, að Jón Hákonarson hafi dáið í plágunni. En þó að hann félli, stóðu verk hans eítir og héldu upp brúnni. Halldór Hermannsson hefur skrif- að ýtarlega um íslenzk handrit, Islandica, 19. bindi 1929. Segir Halldór, að til séu nú, ef talin eru öll brot, um 700 skinnhand- rit, skrifuð á íslandi eða af íslend- ingum fram til miðrar 16. aldar. —
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.