Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1954, Blaðsíða 142
124
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
FormaSur Allsherjarnefndar, Dr. Beck,
flutti tillögu þess efnis a?S senda vara-
gjaldkera, Miss Margréti Pétursson, sem
ekki hafði getaö setiS þingiö sökum las-
leika, blómvönd meö þökkum fyrir unnin
störf og ósk um bráöan bata, samþykkt.
Formaöur allsherjarnefndar flutti álit
þeirrar nefndar um að áskorunin frá
Fróns-deildinni um aö byggingarmáliö
skyldi tekið á dagskrá. Mrs. L. Sveinsson
lagði til að umræöunum um þetta mál
yröi frestað þar til 10.30 að morgni og
þeim mönnum, er undirritað hefðu áskor-
unina 'tilkynnt þetta, svo þeir geti verið til
staðar, ef þeir þess æskja. ólafur Hallsson
studdi tillöguna og var hún samþykkt.
Alit fræðslumálanefndar
Nefndin leggur til:
1. Að stjórnarnefnd ÞjóÖræknisfélagsins
ráði mann eða konu, sem ferðist um
meðal deildanna og skipuleggi islenzku-
kennslustarfið í samráði við deildirnar.
2. Að kostnaður i sambandi við þetta
starf falli jafnt á báöa aðila, þ. e. a. s.
aðalfélagið og deildirnar.
3. Að i sambandi við islenzkukennsluna
sé sérstök áherzla lögð á æfingu íslenzkra
sönglaga.
Solome Backman
Eiríkur Vigfússon
H. ólafsson
Guðm. Magnússon
Hólmfriður Danielson
Framsögumaður nefndarinnar sagði í
greinargerð sinni, að nefnd sín hefði farið
fram á að hún skýröi frá þeim góða ár-
angri, er orðið heföi af fræðslustarfsemi
hennar á vegum félagsins árið 1948—’49,
en sú skýrsla birtist á sinum tíma í Tíma-
riti félagsins.
Dr. Beck stakk upp á, að nefndarálitið
væri rætt lið fyrir lið; séra Eiríkur Bryn-
jólfsson studdi og var það samþykkt.
1. liður. Séra Eiríkur lagði til, að hann
væri samþykktur; Mrs. Björnsson studdi
tillöguna og var hún samþykkt.
2. liður. Mrs. Björnsson lagði til að hann
væri samþykktur, séra Eiríkur studdi;
var hann borinn upp og samþykktur um-
ræðulaust.
3. liður var samþykktur samkvæmt til-
lögu Mrs. Björnsson og séra Eiriks og
svo nefndarálitið í heild, samkvæmt tillögu
Dr. Becks.
Guðm. Magnússon frá Gimli tók til
máls og sagði, að ef til vill mætti vænta
þess að prestarnir, sem nýkomnir væru
frá íslandi myndu stuðla að íslenzku-
kennslu hver í sinu byggðarlagi. Var
gerður góður rómur að máli hans.
Fundi slitið kl. 4.30 og var þá strætis-
vagn til staðar við dyr hússins og fóru
fulltrúar suður til Manitobaháskóla í boði
próf. Finnboga.
Um kveldið hélt Icelandic Canadian
Club fjölsótta samkomu í Fyrstu lútersku
kirkju.
Programmc:
O, CANADA ..........Mrs. W. Kristjanson
—at the Piano
1. CHAIRMAN’S REMARKS
2. Selections from “The Yeomen of the
Guard” ■— Students from the Daniel
Mclntyre Collegiate Institute.
3. Concerto for two Violins and Piano
—Vivaldi
Violins: John Graham and
—Robert Ryback
Piano: Stuart Neirmeir.
4. ADDRESS
—Hon. Byron I. Johnson, M.B.E.
5. VOCAL SOLO ..........Gordon Parker
Mah Lindy Lou .......Lily Strickland
Without a Song ....Vincent Youmans
Deep River ..........H. T. Burleigh
Accompanist: Barry Anderson
GOD SAVE THE QUEEN
Fimmtl fundur
Þjóðræknisfélagsins hófst ki. 10 að
morgni 24. febrúar.
Var útgáfumáiið fyrst tekið tii umræðu
og var séra Philip M. Pétursson fram-
sögumaður þess. Flutti hann nefndarálit i
átta liðum og var það tekið til umræðu
lið fyrir lið, samkvæmt tillögu séra Eiríks
Brynjólfssonar.
útgáfumálanefndarálit
Útgáfumálanefndin leggur til:
1. Að þingið votti ritstjóra Tímaritsins,
hr. Gísla Jónssyni, þakklæti fyrir ágætt
starf á ritstjórn Tímaritsins og góða
frammistöðu I öllum málum þess og láti
þá von í ljósi, að hann haldi áfram þvi
verki, sem hann hefir hingað til leyst sv«
vel af hendi.
2. Að þingið votti Mrs. Björgu Einars-
son þakklæti sitt fyrir hennar mikla
dugnað við auglýsingasöfnun fyrir Tíma-
ritið, og auglýsendum fyrir ágætan stuðn-
ing við það.
3. Að þingið þakki Þjóðræknisfélaginu á
íslandi góða samvinnu á undanförnum
árum og góðum undirtektum á Tímariti
Þjóðræknisfélagsins í Vesturheimi.
4. Að þingið feli væntanlegri stjórnar-
nefnd aö sjá um útgáfu Tímaritsins a
komandi ári og ráði ritstjóra.
5. Að þar sem að íslenzku vikublöðin
hafa átt stóran þátt í því, að halda islenzk-
unni við I þessari heimsálfu, og islenzkum
málum yfirleitt, þá hvetji þingið alla IS"
lendinga til að styrkja blöðin með því a
kaupa og útbreiða þau og að styrlcja ÞaU
á allan annan hátt, sem tækifæi’i og
kringumstæður leyfa.