Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1954, Side 106

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1954, Side 106
88 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA voru ekki þau einu, sem fátæk voru, sagði hún. En svo raknaði fram úr fyrir flestum með tímanum, og því þá ekki eins fyrir þeim. Hún hafði von um atvinnu öðru hvoru á gisti- húsi nokkru; hún hafði unnið þar nokkrum sinnum og með þeim hætti áleit hún, að þau gætu bjargast yfir veturinn, ef hún hefði heilsu og engin ný óhöpp kæmu fyrir. Svo þegar góða veðrið kæmi myndi honum batna. Þá væri þrautin unnin. Hún sá glögt hve tæpt þau stóðu, hún ein til þess að halda lífinu í þeim fjórum, að þetta nýja líí þeirra var fremur örðugt, en svo var ekki að fárast um það. Og öll él birta upp um síðir. Einna erfiðast virtist henni viðar- færslan utan úr skóginum og heim. Að þurfa að kafa snjóinn með viðinn á öxlunum; það var býsna harð- hnjóskulegt kvenmannsverk, og hafði hún þó ekki vanist góðu. En exinni kunni hún að beita eins vel og hver annar. Þegar hún sá, hverju hún fékk áorkað í skógarhögginu, kom fram spurning í huga hennar: Því ekki að skjóta. — Skjóta þeim til bjargar. Hún hafði aldrei hleypt af byssu á æfi sinni. En þá að læra það. Þarna var byssan og skotfæri. En ef eitt- hvert slys hlytist af því. Engu mátti muna, alt líf þeirra hékk á henni einni. Samt fór hún að bera byss- una í sigti, en hún gat aldrei haldið henni kyrri, og hana sárverkjaði í axlirnar eftir viðarburðinn. Byssan var látin á sinn stað. II. Það var aðfangadagur jóla og einum færra í kofanum. Húsmóðirin hafði lagt af stað í býti um morguninn til þess að þvo á gistihúsinu. Þangað var- um 5 míl- ur að fara og færi vont, ekki sízt frá kofanum út á þjóðveginn, en þar var snjórinn troðnari. Hún hafði sagt börnunum, áður en hún fór, hvað þau ættu að gera um daginn, passa eldinn, útvega sér og föður þeirra það sem hún hafði tekið til og sett á vissan stað fyrir þau að finna, það sem þau áttu að borða og útvega föður þeirra að drekka þegar hann vildi, og að vera góð börn, þá skyldi hún færa þeim eitt- hvað. Tilhlökkunin til kvöldsins, þegar móðir þeirra kæmi frá þorpinu með eitthvað fallegt, vék ekki frá þeim allan daginn. Þau höfðu fengið ofur- lítinn skrúðfuruanga utan úr skógi, sem móðir hennar hafði borið heim, því henni þótti hann svo fallegur, og hún sagði þeim að þetta væri jólatréð þeirra. Og þau reistu hann upp við rúmgaflinn sinn, og þetta var jólatréð þeirra, virkilegt jólatré. En aldrei ætlaði þessi dagur að líða. Þeim fanst hann lengri en allir aðrir dagar. Þau hlupu á víxl til föður síns til þess að fá að vita, hvað framorðið var, og hann seildist altaf eftir úrinu sínu í stóra messingar-hulstrinu undir koddann sinn. Eftir því sem á daginn leið, dimmdi meira í lofti og það fór að drífa. Eftir góða stund var skollin á norðanhríð með mikilli fannkomu. Faðirinn varð órólegur. Börnin fóru út til þess að geta sagt honum hvernig viðraði. Þau supu hveljur, þegar snjógusurnar komu framan í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.