Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1958, Blaðsíða 92
74
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
Þarna trúi ég, að hann Sölvi komi.
Ég má ekki vera að standa hér leng-
ur. (fer. Pétur gefur Þórði og Páli
bendingu um að fara. Sölvi kemur
inn).
FJÓRÐA ATRIÐI
Pétur, Jón, Sölvi.
Sölvi. Hverjir eru þessir ungu
menn, sem mér veitist sú ánægja að
hitta hér og skifta orðum við?
Péiur. Við erum skólapiltar á leið
suður í skóla. En með leyfi að spyrja,
er ekki þessi maður Sölvi Helgason?
Sölvi. Svo er, sem hinn ungi mað-
ur spyr, Sölvi Helgason, útlærður
fjöllistafræðingur frá háskólanum,
Universitetinu í Kaupmannahöfn.
Péiur. Þá getið þér frætt okkur
um ýmislegt, því við erum nú ekki
orðnir sérlega lærðir enn, þó það
heiti svo, að við séum 1 skóla.
Sölvi. Það er mitt yndi og ánægja,
þegar ég hitti fyrir mér unga menn,
að gefa þeim færi á að bergja á hin-
um silfurtæru lindum viskunnar og
vísindanna (hátíðlegur). Þessi hönd
(réttir hana fram) og þessi munnur
hefir margsinnis leitt hinn ramm-
vilta rófubeinaheim og hina vitlausu
veröldu á rétta leið frá myrkrinu
til ljóssins.
Pétur (lágt til Jóns). Nú er andinn
kominn yfir hann. (hátt). Það hafa
víst verið býsna margar fræðigrein-
ir kendar á háskólanum.
Sölvi. Það voru allar mögulegar
fræðigreinir, tungumál, bæði forn
og ný, historia, himintunglafræði,
mannkynsfræði, bæði um náttúru-
grös og náttúrusteina, málaralist og
hugmyndafræði, auk annarra.
Pétur. Eitthvað hefir nú verið
kent. Það hefir þurft meira en smá-
ræðishöfuð til að taka á móti öllu
þessu.
Sölvi. Það veittist mörgum erfitt
og yfir höfuð öllum nema mér, en
ég drakk alt í mig, eitt á fætur öðru,
svo að nú er ég kominn upp á sjón-
arhól í ríki vísindanna og hugmynd-
anna, og þaðan horfi ég ofan yfh
þessa fáfróðu veröldu.
Jón. Hvað var kent þar í Geologí?
Það hafa víst verið nokkrir kapítul-
ar í Maríusi.
Sölvi. Allur Maríus frá upphafi
til enda.
Jón. En í gynecologi? Það hefir
víst verið lesið eitthvað í ritum
Kambýsesar.
Sölvi. Öll rit Kambýsesars, og ekki
sleppt einni línu.
Péiur. Létu kennararnir ykkur
ekki stundum studera luere
corporere?*
Sölvi (lágt). Það er víst eitthvað
mikið. (hátt). Engan nema mig ein-
an, því ég var þeirra mestur í öllu-
Jón. Hafið þér ekki ritað neitt>
síðan þér komuð frá háskólanum,
svo að fróðleikur yðar mætti geym'
ast handa seinni tíma mönnum?
Sölvi. Fleiri bindi en tölu verði a
komið, sem liggur hjá mér í hlöð'
um. Núna seinast Frakklands hiS'
toríu í 30 bindum og 50 arkir 1
hverju bindi.
Péiur. Það er nú aldrei bók.
hvað segið þér þá um Caligúlu?
Sölvi. Mér geðjast einna best u
honum af öllum Frakklandskonung
um.
‘ÞýíSir aíS berja — setja í skanima
krókinn. AtS mestu ólæsilegt.