Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1962, Side 28

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1962, Side 28
10 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA ljós, áður langt leið á daginn, að hug- ur hans hneigðist í aðra átt. Haustið 1904 hvarf hann frá guðfræðinám- inu, en innritaðist í mannfræðideild háskólans, enda hafði hann nú á- kveðið að verða mannfræðingur. Lauk hann meistaraprófi í þeim fræðum á Harvard-háskóla 1906. Um afstöðu Vilhjálms til trúmál- anna skal því bætt við, að hann var alla ævi maður frjálslyndur í þeim efnum, átti jafnan hinn opna hug sannleiksleitandans á þeim sviðum sem öðrum. Á seinni árum varð hann félagsmaður í Leikmannafélagi Únítara (Unitarian Laymen’s League) og í ráðgefandi nefnd þess, og einnig í kirkjulegum félagskap Únitara (Unitarian Fellowship) í Hanover. Var hans einnig mjög vel og sérstaklega hlýlega getið í nóv- ember (1962) hefti málgagns Únítara Universalista, Regisier-Leader, og áður í styttra máli í októberhefti fréttabréfs þeirra (In Brief). Eins og fyrr getur, hneigðist hug- ur Vilhjálms fyrst að skáldskap, og birti hann á háskólaárum sínum í Grand Forks allmörg kvæði (vitan- lega á ensku) í mánaðarriti háskóla- stúdenta. Hefi ég nýlega athugað þessi kvæði hans, og hefi í huga að rita um þau ítarlegar einhverntíma, en þau eru Ijóðræn, með undiröldu djúprar íhygli, og bera því vitni, að hann var stórum meir en venju- legum gáfum gæddur á því sviði. Einu af þessum kvæðum hans, „Heimspeki tvítugs manns" (Phil- osophy of a Man of Twenty) sneri dr. Sigurður Júlíus Jóhannesson á íslenzku fyrir allmörgum árum síð- an, og kom þýðing hans fyrst í vest- ur-íslenzku vikublöðunum, en síðar í grein dr. Sigurðar „Framtíðarbók- menntir Islendinga í Vesturheimi“ hér í ritinu (1951); er þýðing hans tekin upp sem sýnishorn ljóðagerðar Vilhjálms, og er á þessa leið: Á sál mína leitar kennd í kvöld sem kærleikur skaparans í öndverðu gaf sem leiðarljós í lífi hvers óbreytts manns: Því ástin er lögmál — alheimsmál; hver einasta sál það kann; hún veitir því ytra veg og skraut og vermir hinn innra mann. Það stórt er að vinna sigursveig, í sögunni dýrð og hrós, í frægðarverkum og skörungsskap að skína sem fagurt ljós. En öll þau verðlaun, sem veröld á frá valdhafa nokkurs lands, ég fyrirlít — kýs mér konuást í kóngsríki óbreytts manns. Þó glaumurinn nafn mitt hefji hátt, sú hæð er mér engin þægð; því konunnar ást, sem óð minn söng, skal aldreigi mæld við frægð. Og engin virðing, sem veröld á frá valdhafa nokkurs lands, má komast til jafns við konuást. í kjörum og líðan manns. En bregðist himnesk og heilög ást, og hlotnist ei þér né mér, þá dyljum sorgir og dáið líf með drengskap við hvað sem er. Því þeir, sem fórnstalla byggðu bezt, og brautsmiðir sérhvers lands eru ,kappar, sem hlutu' ei konuást né kóngsríki óbreytts manns. í þessu sambandi má einnig minna á það, að á háskólaárum sínum í Harvard (1904) birti Vilhjálmur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.