Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1962, Page 103

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1962, Page 103
ÞINGTÍÐINDI 85 Ársskýrsla þjóðræknisdeildarinnar „Brúin" 1961 Þjóðræknisdeildin „Brúin“ hélt _ sjö fundi á árinu. Allir voru þeir vel sóttir af starfandi meðlimum félagsins. Tveir nýir meðlimir gengu í félagið. Einn meðlimur hefir dáið, Mrs. Ingibjörg Pálson, ekkja Kristjáns Pálsonar. Á árinu var stofnað til tveggja arð- berandi fyrirtækja með allgóðum ár- angri. úr sjóði hafa verið sendar smá- gjafir til elliheimilisins „Betel” og ís- lenzka vikublaðsins. Einnig hafa verið sendar smáglaðningar til sjúkra í hlut- tekningarskyni. Aðaláhugamál okkar er viðhald bóka- safnsins, sem hefir að geyma eitt þúsund bækur. Einnig berum við íslenzka viku- blaðið mjög fyrir brjósti. Á umliðnu hausti kom til mála að verða við beiðni útbreiðslunefndar blaðsins um að hafa samkomu því til styrktar. Þessu var þó frestað til næsta árs, og hefir það nú verið tekið upp að nýju. Vonumst við til að geta látið eitt- hvað til okkar taka að þessu leyti. Deildin óskar þinginu alls hins bezta. Guðrún Vigfússon ritari. Flutningsmaður lagði til, að skýrslan yrði viðtekin. Það var stutt af mörgum og tillagan síðan samþykkt. Ritari flutti þessu næst ársskýrslu delidarinnar „Frón“ í Winnipeg. Ársskýrsla þi óðræknisdeildarinnar „Frón" 1961 Fjórir stjórnamefndarfundir hafa ver- ið haldnir á árinu og tveir skemmtifund- ir. Miðsvetrarmót Fróns s.l. ár var höf- uðviðburður í starfi deildarinnar. Aðal- ræðumaður á því móti var Sveinn Skorri Höskuldsson magister, auk hans komu þar fram margir aðrir ágætir skemmtikraftar. Síðast liðið vor, þann 6. apríl, hafði Frón skemmtifund. Voru fluttir þættir úr íslenzkum nútíðarbókmenntum, eink- um Ijóð sex skálda. Miss Guðbjörg Sig- urðson, Hjálmar Lárusson, Heimir Thorgrimson, Sveinn Skorri Höskulds- son og Haraldur Bessason önnuðust dagskrána, en hún var tekin saman af tveim hinum síðast nefndu. Arður af þessari samkomu $26.00 var látinn renna til vikublaðsins íslenzka, Lög- bergs-Heimskringlu. í fyrstu viku nóvembermánaðar var haldinn ársfundur deildarinnar og eftir- talið fólk kjörið í stjórnarnefnd: Har- aldur Bessason forseti, Jakob F. Krist- jánsson varaforseti, Jochum Ásgeirson gjaldkeri, Miss Guðbjörg Sigurðson vara- gjaldkeri, Heimir Thorgrimson ritari, Benedikt Ólafsson vararitari, Gunnar Baldwinson fjármálaritari og Guðmann Levy varafjármálaritari. Síðan aðalfundur var haldinn, hefir einn stjórnarmeðlimur látizt, Benedikt Ólafsson vararitari. Áttum við þar góð- um dreng á bak að sjá, og er hans nú sárt saknað. Bókasafn deildarinnar er í góðum höndum, en frú ólafía Johnson hefir sem að undanförnu annazt bókavörzlu. Útlán í ár voru svipuð og á síðast liðnu ári. Þjóðræknisdeildin Frón árnar hinu fertugasta og þriðja ársþingi Þjóðrækn- isfélagsins allra heilla. H. Thorgrimson ritari. Flutningsmaður lagði til, að skýrslan yrði viðtekin. Miss Guðbjörg Sigurðson studdi, og var tillagan því næst sam- þykkt. Grettir L. Johannson afhenti síðan þjóðræknisþingi Skjaldarmerki íslands að gjöf frá forseta íslands og las kveðju frá forsetanum. ÁVARP FORSETA ÍSLANDS, HERRA ÁSGEIRS ÁSGEIRSSONAR, TIL ÞJÓÐRÆKNISÞINGS VESTUR- ÍSLENDINGA FEBRÚAR 1962 Við hjónin sendum Þjóðræknisþing- inu beztu kveðjur og árnaðaróskir, og Þjóðræknisfélaginu innilegar þakkir fyr- ir allan viðbúnað og ástúðlegar viðtök- ur í ferð okkar um Kanada á síðast- liðnu hausti. Við biðjum ykkur, kæru fulltrúar og gestir þingsins, að flytja þessar kveðjur og þakkir um allar ís- lendingabyggðir og borgir, allt austan frá Quebec, þar sem við stigum á land og vestur til Victoria á Vancouver Island, þar sem við snerum aftur heim á leið. Við sendum sömu þakkarkveðju til allra þeirra, sem komu norður yfir landamerkin á okkar fund, og vitum að þeir misskilja ekki, að við þorðum, sannast að segja, ekki suður fyrir landa- mærin. Kanada var vissulega nóg við- fangsefni í einni ferð. Við sendum að þessu sinni í þakkar- og vinaskyni Skjaldarmerki fslands af sömu gerð og stærð, sem skreytir veggi Bessastaðakirkju. Við teljum viðeigandi, að þetta skjaldarmerki sé öllum sýnilegt á virðulegum stað á Þjóðræknisþingum og íslendingadegi á Gimli, og geymt þess, á milli, þar sem þið ákveðið. Við sendum einnig kvikmynd af Kanadaför okkar. Efni hennar er að því leyti takmarkað, að ekki var hægt að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.