Fréttablaðið - 15.12.2012, Page 132
15. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 92
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
LAUGARDAGUR
15. DESEMBER 2012
Sýningar
18.00 Sýningarnar Tillit og Kompós-
isjón opna í Artíma Gallerí, Skúlagötu
28. Listamennirnir eru Edda Mac og
Karen Björg Jóhannsdóttir.
Uppákomur
11.00 Þvörusleikir kíkir í heimsókn á
Þjóðminjasafn Íslands og Grýla verður
með í för. Aðgangur er ókeypis.
12.34 Fjölbreytt menningardagskrá
er í boði á Jóladagatali Norræna
hússins. Uppákomur hvers dags eru
gestum huldar þar til gluggi dagatalsins
verður opnaður í upphafi atburðarins.
Listamaðurinn Hugleikur Dagsson gerði
dagatalið í ár.
Tónlist
16.00 Drengjakór Reykjavíkur heldur
sína árlegu jólatónleika í Hallgríms-
kirkju.
21.00 Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson
halda tónleika á Kex Hosteli. Tónleik-
arnir eru hluti af Kexmas 2012, jóladag-
skrá Kex Hostels. Miðaverð er kr. 2.000
við hurð.
21.00 Sísi Ey, Ewok og DJ Margeir spila
á próflokapartíi Bars 11. Aðgangur er
ókeypis.
21.00 Frönsku þungarokkshljómsveit-
irnar L’esprit du Clan og Hangman’s
Chair halda tónleika á Græna Hatt-
inum Akureyri. Auk þeirra koma fram
Momentum og Skurk. Miðaverð er kr.
2.000 og það er 18 ára aldurstakmark.
22.00 Svavar Knútur verður í jólastuði
á Café Rosenberg og fær hann til sín
góða gesti.
23.00 Sváfnir Sigurðarson og Tómas
Tómasson skemmta á Ob-La-Dí-Ob-
La-Da Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr.
1.000.
Fyrirlestrar
12.00 Terry Gunnell flytur fyrirlestur
um íslenska jólasiði í Þjóðminjasafni
Íslands. Aðgangur er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is
Tríóið Ljómur heldur jólatónleika í
Garðakirkju næstkomandi sunnu-
dag klukkan fimm. Á efnisskránni
eru fjölbreytt klassísk jólalög,
íslenskrar og erlendar Ave Maríur
og verk eftir Hreiðar Inga Þor-
steinsson.
Tríóið Ljóm skipa þær Gerður
Bolladóttir sópran, Victoria
Tarevskaia á selló og Sophie
Schoonjans á hörpu. Gestasöngv-
ari á tónleikunum er Hólmfríður
Jóhannesdóttir messósópran.
Aðgangseyrir á tónleikana er
2.000 krónur, 1.500 fyrir eldri
borgara og frítt fyrir börn yngri
en 16 ára.
Ljómur í
Garðakirkju
LJÓMANDI Á efnisskrá tríósins eru m.a.
íslenskar og erlendar Ave Maríur.
Upphaflega var áætlað að síðasta
sýningin yrði föstudaginn 14. des-
ember en troðfullt hefur verið á
allar sýningar og því býður Nem-
endaleikhúsið upp á aukasýningar
laugardaginn 15. desember, sunnu-
daginn 16. desember og þriðju daginn
18. desember. Viðtökur hafa komið
aðstandendum sýningarinnar nokkuð
á óvart, en í ár eru 100 ár liðin síðan
sænska leikskáldið August Strind-
berg lést.
Í útskriftarárgangi leiklistar deildar
LHÍ eru þau Hildur Berglind Arndal,
Þór Birgisson, Elma Stefanía Ágústs-
dóttir, Þorleifur Einarsson, Hafdís
Helga Helgadóttir, Arn mundur Ernst
Backman, Thelma Marín Jónsdóttir,
Oddur Júlíusson, Arnar Dan Krist-
jánsson og Salóme Rannveig Gunnars-
dóttir. Leikstjóri verksins er Egill
Heiðar Anton Pálsson.
Ókeypis er á sýninguna en það þarf
að taka frá miða á leikhus@lhi.is.
Sýningar fara fram í Smiðjunni,
Sölvhólsgötu 13 og hefjast kl. 20.
Strindberg slær í gegn
Sýning Nemendaleikhússins á Strindberg hefur heldur
betur slegið í gegn. Boðið verður upp á aukasýningar.
NEMENDA-
LEIKHÚS
Þremur sýn-
ingum hefur
verið bætt við
vegna góðrar
aðsóknar.