Fréttablaðið - 15.12.2012, Blaðsíða 61
UMBÚÐIR
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2012
Kynningarblað
Pappírsumbúðir
Plastumbúðir
Sérmerktar umbúðir
Hönnun og ráðgjöf
Oddi og Plastprent munu sameinast undir merki Odda um áramótin. Þar
með verður til öflugt íslenskt fyrir-
tæki á umbúðamarkaði sem býður
mjög breiða vörulínu,“ segir Jón
Ómar Erlingsson, framkvæmda-
stjóri Odda.
Með sameiningunni verður
Oddi yfir 300 manna vinnu staður.
Jón segir Plastprent öflugt fyrir-
tæki með langa sögu að baki og
miklir möguleikar fylgi samein-
ingu þessara tveggja fyrir tækja.
„Plast- og pappaum búðir eru
gjarnan notaðar saman og við-
skiptavinir fyrirtækjanna hafa
svipaðar þarfir. Það er ekki nóg
að umbúðirnar sem slíkar séu í
lagi heldur þarf að afhenda þær
á réttum stað og á réttum tíma.
Það verður einnig að vera hægt
að bregðast hratt við ef óvænt
eftirspurn skýtur upp kollinum.
Við teljum okkur geta betur upp-
fyllt þessar þarfir í sameinuðu
fyrirtæki þar sem í boði eru allar
plastumbúðir og pappaumbúðir á
einum stað.“
Verkefni af öllum stærðum og
gerðum
Oddi þjónustar viðskiptavini
með allar tegundir umbúða, allt
frá einstaklingum með nokkur
stykki til stórra útflutningsfyrir-
tækja sem kaupa hundrað þús-
und stykki í einu. Jón kallar það
„íslenska módelið“.
„Við erum íslenska útgáfan af
fyrirtæki sem þarf að geta gert
allt fyrir alla og afgreitt pantan-
ir af öllum stærðum og gerðum.
Fyrir tækið hefur byggst upp á
þessum íslenska markaði og allt
okkar starf gengur út á að uppfylla
ó líkar þarfir. Þetta hefur gert það
að verkum að það er eftirsóknar-
vert fyrir erlend fyrirtæki að skipta
við okkur en við flytjum töluvert af
umbúðum út. Það eru ekki mörg
fyrirtæki sem gera allt á einum
stað.“
Sérhönnun umbúða
Oddi kemur að sérhönnun um-
búða af öllu tagi. Jón segir betra
að fyrirtækið komi fyrr en seinna
að hönnunarferlinu og aðstoði
fólk við að finna hagkvæmustu
lausnina.
„Hingað kemur fólk með alls
konar hugmyndir um um búðir,
jafnvel fyrir vöru sem ekki er enn
orðin til. Baráttan um hillu plássið
í verslunum er hörð og fyrirtæki
eru að átta sig á því hvað um búðir
skipta miklu máli í sölu vörunnar.
Við höfum dæmi um það að sölu-
tölur hafi allt að því tífaldast á
vöru við það eitt að skipta um
um búðir. Við aðstoðum alla við
útfærslu umbúðanna svo að þær
þjóni þörfum viðskiptavinarins
sem best en séu jafnframt hag-
kvæmar í framleiðslu. Hjá okkur
starfa reyndir umbúða hönnuðir
en við erum einnig í góðu sam-
starfi við fjölda annarra hönnuða.
Við höfum til dæmis staðið fyrir
árlegri umbúðahönnunarsam-
keppni þar sem margar skemmti-
legar hugmyndir hafa komið
fram“.
Eitt þeirra verkefna sem vann til
verðlauna í ár er nú hluti af fram-
leiðslu Odda. „Myndabækur sem
við prentum mikið af fyrir jólin
eru afhentar í þeim umbúðum.“
Allar umbúðir á einum stað
Oddi er stærsti umbúðaframleiðandi á Íslandi en fyrirtækið sameinaðist Kassagerðinni árið 2008. Nú stendur Oddi enn á
tímamótum en fram undan er frekari sameining á markaði umbúðaframleiðenda þegar Oddi og Plastprent sameinast.
Jón Ómar Erlingsson, framkvæmdastjóri Odda, segir dæmi um að sala vöru hafi margfaldast við það að skipta um umbúðir. MYND/PJETUR
100.000 pakkningar
sem auka verðmæti
sjávarafurða.
Erlendur Arnaldsson
Framleiðslustjóri
Jónína Hrólfsdóttir
Framleiðslustjóri
40.000 öskjur utan um
vermætar afurðir fyrir
markaði erlendis.
Sigurður Kristjánsson
Verksmiðjustjóri
19.725 pakkar fyrir
bragðgóða upplyftingu.
UMHVERFISVOTTUÐ
PRENTSMIÐJA
Oddi fyrir þig,
þegar hentar,
eins og þér
hentar.
Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is
ODDI SAMEINAST PLASTPRENTI
Oddi og Plastprent munu sameinast undir merki
Odda um áramótin. Þar með verður til öflugt íslenskt
fyrirtæki á umbúðamarkaði sem býður mjög breiða
vörulínu. Í sameinuðu fyrirtæki verða allar plastum-
búðir og pappaumbúðir í boði á einum stað.
HÖNNUNARSAMKEPPNI
Árlega stendur Oddi fyrir
umbúðahönnunarsamkeppni.
Eitt þeirra verkefna sem vann
til verðlauna í ár er nú hluti af
framleiðslu Odda. Myndabækur
sem Oddi prentar mikið af
fyrir jólin eru afhentar í þeim
umbúðum.