Heimilisritið - 01.12.1948, Síða 29

Heimilisritið - 01.12.1948, Síða 29
nema landið' yrði bjargþrota þá og þegar, og þá var gott að eiga eitthvað sem hægt væri að grípa til. .. . Hvað sem öðru leið, skyldi hann ekki verða hungur- morða. Nú, það væri gaman að sjá framan í þann eða þá, sem í fullri alvöru og einlægni gagn- vart sjálfum sér, þyrði að lá Gísla bónda slíka forsjálni. Tím- arnir voru þannig, að mönnum var nauðsynlegt að halda spar- lega á eignum sínum til þess blátt áfram að geta lifað. Eða hvað sá maður ekki í kring um sig? Eymd og aftur eymd! Þeg- ar manni var þyrmt við eyði- leggjandi eldgosum, var eins og það væri föst regla að hafísinn kæmi og lokaði fyrir alla firði, svo að maður fékk ekki bein úr sjó í marga mánuði. Og ofan á alla þá eymd og óhamingju sem náttúran var orsök í, bættust svo verzlunarhættir sem voru þannig, að því er erfitt að lýsa svo að því verði trúað. Auk alls þessa var svo mannfólkið sjálft, sem rambaði stöðugt á barmi helvítis og átti í þrotlausri bar- áttu við Satan, þann leiða óvin, sem allt ætlaði að steikja. Vald Satans sást hvarvetna, bæði í náttúrunni og manninum sjálf- um. Þjónar drottins börðust djarflega gegn Satan og þjónum hans, og mörg voru bálin orðin, þar sem galdramenn höfðu feng- ið „dauða hægan og án blóðsút- hellinga“ fyrir glæpi sína. Hræðslan við ákæru um galdur reið mönnum eins og mara. Einkuin var það hættulegt ef einhverri æruverðugri prestsfrú varð snögglega illt, því að þá var hér um bil víst að einhver mundi verða brenndur fyrir að hafa or- sakað sjúkleika hennar. Já, það var einkennileg og hryllileg öld. . . . Ofan á allar þessar plágur bættist óttinn við sjóræningja. Það var ekki langt síðan að' spænskir ræningjar höfðu gert hervirki á Vestfjörðum. Að vísu tókst hinu röggsamlega yfir- valdi Vestfirðinga að ráða nið- urlögum þeirra, en hver vissi nema þeir spænsku hyggðu á hefndir og kæmu með óvígan her til landsins í því skyni? Svona var öldin. Auð\dtað gat ekki hjá því farið að mann- eskjurnar yrðu mótaðar af um- hverfi sínu. Þær urðu smásálar- legar, og eiginhagsmunasýkin lagði hug þeirra í fjötra. Þeim var mest í muna að njóta gleði augnabliksins, því að engum skynsömum manni kom til hug- ar að unnt væri að spoma við þeim plágum, sem alls staðar vofðu yfir höfði manna. Og því varð gleði augnabliksins matur og aðeins matur. Feitur matur! Himnaríki var því aðeins ákjós- HEIMILISRITIÐ 27

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.