Heimilisritið - 01.12.1948, Síða 48

Heimilisritið - 01.12.1948, Síða 48
skóiameistarinn fengi skýrslu um það og merki yrði sett í ein- kannabókina mína. Hingað til hafði ég eingöngu lært, hvernig ég ætti að haga mér sem prins, og einhvern veginn fannst mér heppilegra að gangast undir vöndinn hjá skólameistaranum, heldur en hjá strákunum. Það' varð því úr, að ég laumaðist til herbergis míns og náði mér í hreina skyrtu úr kofforti mínu. Dómurinn. Eins og ég hafði óttast var nafn mitt sett á svarta listann næsta morgun, og ég var dæmd- ur til að hlaupa hringinn í kring- um hesthúsið, í frístundum mín- um næstu þrjá daga, með prik mikið, sem ég átti að halda fyr- ir aftan mig. Einu sinni tóku stóru strák- arnir mig og settu höfuðið á mér út um glugga á kennslustofu, en létu svo rúðurammann falla að hálsi mér, og þar sat ég fastur, þegar skólabræð'ur mínir hlupu í raðir sínar til eftirlits og upp- talningar. Þetta var víst til að minna mig á, hvernig farið hafði fyrir Karli I. og bvernig brezkir þegn- ar færu með konungborið fólk, sem hagaði sér ekki sómasam- lega. Einhver heyrði óp mín og leysti mig úr prísundinni, og til allrar hamingju hékk höfuðið enn við búkinn. En þrátt fyrir þessar róttæku aðgerðir gegn mér, var líf mitt í Osborne ósköp líkt lífi annarra sj óliðsf oringj aefna. Bekknum okkar var skipt í tvær vaktir, stjórnborðsvakt og bakborðsvakt. I stjórnborðs- vaktinni voru gáfnaljósin, en tossarnir í hinni. Við fylltum tvo svefnskála af tólf, sem hver fyrir sig var nefndur eftir brezk- um flotaforingja. Minn svefn- skáli bar hið fræga nafn Ex- mouth, en ég hóf skólagöngu mína á bakborðsvakt nr. 3, mesta tossabekknum. Við vorum vaktir með lúðra- blæstri klulckan 6 að sumri og 6,30 að vetri, en skömmu síð'ar hljómaði bjalla ein mikil og við skriðum allir úr fletum okkar, lögðumst á hné og báðum morg- unbænir okkar. Vaktstjórinn á- kvað sjálfur þann tíma, sem Herrann átti að hlusta á bænir okkar. Enn einu sinni hljómaði bjallan, sem merki um, að við áttum að steypa okkur í ískalda sundlaugina við enda svefnskál- ans. Enn þann dag í dag þarf ég ekki annað en að' loka augunum til að sjá fyrir mér hóp af nökt- um stráklingum, sem reknir voru í laugina eins og fénaður, í fyrstu morgunskímunni. Til að byrja 46 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.