Heimilisritið - 01.11.1949, Page 5

Heimilisritið - 01.11.1949, Page 5
þau voru öll samankomin. Þá hrökk ég við og hafði ef til vill lesið heila síð'u án þess að vita, um hvað hún fjallað'i. Þegar þetta hafði endurtekið sig nokkrum sinnum, skellti ég bókinni aftur og þeytti henni frá mér.^ En það endurtók sig hvert kvöld sem ég var heima. A daginn bar ekkert á þessu. Að vísu hvarflaði hugurinn við og við að því sama, en starfið, fólkið og allur ysinn og þvsinn, drekktu því, og ýmislegt annað rak þessa hugsun á bug. En kvöldin voru hræðileg. Þá var allt kyrrt og hljótt. Þá var sama livað ég gerði. Ef ég var heima dugði ekkert. Ég gat ekki flúið hugsunina, þegar ég var alls- gáður heima í herberginu mínu. Helzta ráðið var því að fara í kvikmyndahús — eða þá að drekka mig fullan. Fyrst eftir hið hræðilega kvöld, þegar hún kom, drakk ég mjög mikið, alltof mikið. — En ég vissi, að' ef ég átti eitthvað að verða, mátti ég ekki drekka. Eg reyndi því að forðast það eins og ég mögulega gat, og það var ekki svo erfitt, því að sál- arkvalirnar komu ekki fyrr en búið var að loka vínbúðinni. Ég fleygði mér upp í legu- bekkinn og reyndi að vísu hugs- ununum á bug, en árangurs- laust. Það var eins og ég hefðj aldrei verið ásóttur eins og em- mitt í kvöld. Og ekki nóg með það. Mér fannst eins og ég væri ekki vel með sjálfum mér. Ég fann eitthvað undarlegt magn- ast hið innra með mér, en ég gat ekki gert mér grein fyrir hvað það eiginlega var. Ég teygði út höndina, slökkti ljósið á borð- lampanum mínum og lagði aft- ur augun. Ég ætlaði að reyna að' sofna og komast þannig und- an hugsuninni, en eftir skamma stund spratt ég á fætur aftur. Öll smáatriðin höfðu komið enn á nú, hvert á fætur öðru, og aldr- ei eins ljóst og nú. Mér veittist erfitt að rífa mig frá þeim. — Þetta gengur ékki! Eg opnaði útvarpstækið og lagðist upp á legubekkinn aftur, og kveikti aftur á litla ljósinu á borðlamp- anum mínum. — Það var hljóm- list í útvarpinu, lagið á enda. — Örlítið hlé, einhver einkennileg- ur höfgi sveif á mig, það var ró og friður. Mér líð'ur mikið bet- ur. Það var eins og hugurinn lyftist, og ég er eiginlega róleg- ur og þó er einhver kvíði, ein- hver óró undir, en þó öðruvísi en áður. Ég finn, að hugsunin kemur að mér aftur, ég reyni að berj- ast á móti henni, ég vil njóta þessa friðar, sem kominn er yf- ir mig, en ég er eins og sviptur allri mótstöðu, ég er gersamlega HEIMILISRITIÐ 3

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.