Heimilisritið - 01.11.1949, Page 6

Heimilisritið - 01.11.1949, Page 6
vamarlaus fyrir hugsuninni, og ég þjáist af kvíða. Það sígur á mig eitthvert mók. I gegnum höfgann heyri ég, að byrjað er að' leika nýtt lag í útvarpinu. — Eg hrekk við, það er lagið henn- ar. — Nei. Eg reyni að rífa mig upp úr dofanum, en mér tekst ekki að standa á fætur. Skyldi ég hafa sofnað? Er þetta mar- tröð? Eg klíp mig í kinnina. — Nei, ég er ekki sofandi. Ég geri enn eina tilraun til þess að rísa á fætur, en mér tekst það ekki. — Ég gefst upp, ligg kyrr og reyni að hlusta ekki á lagið — að vísa á bug hugsuninni — en árang- urslaust. I>að er eins og tekið sé í taumana, og ég get ekki annað' en gefið hug minn frjálsan fyrir hinum áleitnu hugsunum. Það er ekki að sökum að spyrja, hvaða hugsanir koma. Nú heyri ég lagið betur en áður. Það er eins og það síist inn í huga minn. — 0g nú koma minningarnar — hugsanirnar, hver á fætur ann- arri. Og þó er þetta allt ein- hvernveginn öðruvísi en áður. Nú valda þær ekki eins miklum sársauka, og nú eru þær miklu skýrari og greinilegri. Ég sé allt ljóst, hvert smáatriði, hvernig hinn sorglegi atburður hefur gerzt — og ég sé meira. Hugsan- irnar koma hver á fætur ann- arri. Þetta er lagið hennar, lagið' okkar. HÉRNA HAFÐI HÚN hvílt við hlið mér, og ég hafði hvíslað í eyra hennar öllu því fegursta, sem ég átti til, en hún kyssti mig og bað mig að vera hljóðan, þangað til lagið væri búið. Það var þetta lag. Og svo hlustuð- um við bæði á lagið til enda, og þá kyssti hún mig og sagðist elska mig. Ég var óumræðilega sæll og faðmaði hana að mér. Við lágum þögul og hlustuðum á lagið hennar, og öðru hverju kysstumst við og vorum alsæl. Stundum sögðum við eitthvað, eitthvað' svo undurfagurt hvort við annað. Þetta var í þriðja skiptið, sem við vorum saman frá því við kynntumst, og í fyrsta sinn, sem þú fórst ekki frá mér fyrr en um morguninn, þegar ég þurfti að fara í skólann og þú í vinnuna. — Manstu það vinkona? Ég elskaði þig og þú elskaðir mig. Eftir þá nótt komstu oft til mín og við hétum því að aldrei skyldi neitt skilja okkur að. Um leið og ég hefði lokið námi, ætl- uðum við að gifta okkur og eign- ast heimili og börn. Þú bauðst mér heim til þín og ég kynntist foreldrum þínum, yndislegu al- þýðufólki. — Ég elskaði þig, vinkona, meir en allt annað. Ég var gerbreyttur maður, hættur að drekka og sótti nú námið af kappi, og hver stund leið í dýr- 4 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.