Heimilisritið - 01.11.1949, Side 20

Heimilisritið - 01.11.1949, Side 20
hann fær eldheitt bréf frá konu, sem skrifar það undir dulnefni. Það er um bók hans Sálfrœðí hjónabandsins. Bréfið hrífur hann, og hann svarar. Þetta leiðir til frekari bréfaviðskipta. Einn góðan veðurdag afhjúpar konan sig, og það kemur í ljós að hér er um að ræða, hvorki meira né minna^, en hertogaynjuna yfir Costrie. Hún er víðkunn fyrir fegurð, andríki og auðlegð. Og það þykir mikill heiður að vera gestur í samkvæmum hennar, því að þangað eru aðeins fáir velkomnir. Balzac er boðið ftil kvöldverðar á heimili hennar, og hann verður upp með sér og hamingjusamur. Hingað til hef- ur hann orðið að láta sér nægja að umgangast ný-aðalinn, sem átti tilveru sína Napoleon að þakka, en hér er hertogaynja, sem getur rakið aðalsuppruna sinn mörg hundruð ár aftur í tímann, og sem þar að auki á heima í Faubourg St. Germain. En hann verður alveg ringlaður þegar hún býður honum að fylgja sér á baðstaðina í Aix. Nú finnst honum hann dvelja í paradís, en lengi stendur sælan ekki, aðeins einn mánuð. En á þessum mánuði tekst henni samt að deyfa Napoleonshrifn- ingu hans, hann gerist stjórnar- sinni og býður sig fram í mörg- um kjördæmum, en fellur því miður allsstaðar. Svo snýr hann aleinn aftur og færir ævintýrið samstundis yfir í rómaninn Her- togaynjan yfir Langeais, þar sem hann lýsir henni sem þeirri, er aðeins lifir til þess að' leika sér að’ karlmönnunum. Hún hefnir sín með því að kaupa enska konu til þess að skrifa lionum brennandi ástarbréf, og Balzac samþykkir loks að eiga stefnumót við hana í Boulogne- skóginum. Þegar þau hittast, hefur hún slæðu fyrir andlitinu. Þegar hún afhjúpar svo and- litið, sýnir það sig, að hún er görnul og svo ljót, að Balzac verður þrumu lostinn. I grennd- inni bíður vagn, og í gegnum vagngluggann gægist höfuð', sem ekki er aldeilis mjög anguryært. Og nú komum við að lokum að þeirri konu, sem eiginlega varð örlög Balzacs. Hann er þrjátíu og tveggja ára, þegar hann fær bréf, sem er skrifað lengst austur í Ukra- inu, og ^undirritað „Útlending- ur“. Aftur var hér um að ræða hrifningu yfir Sálfræði hjóna- bandsins, og enn hefjast spenn- andi bréfaviðskipti. Þetta er áð- ur en farið er að taka ljósmynd- ir. Það er andi bréfanna, sem fær hvort um sig til þess að' mynda sér skoðanir um útlit hins. Og að lokum fellst hún á að hitta hann í Neuchatel. 18 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.