Heimilisritið - 01.11.1949, Page 58

Heimilisritið - 01.11.1949, Page 58
án mín, hugsaði hún, er hún hljóp heim til sín. Það hafði rignt, meðan hún var hjá frú Wyatt. Nú var stytt upp og loftið var dásamlega hreint. „Ég vissi þetta fyrir löngu“, hugsaði hún. Ég hef beðið eftir þessari stundu, en ekki búizt við henni svona fljótt. En það var sama, hvenær þetta skeði — það var ekkert léttara að þola það í júní eða ágúst en núna í apríl. Hcnni hafði aldrei fundizt hún vera eins einmana og þegar hún gekk upp tröppurnar heima hjá sér. „EN SETJUM nú svo, já, setjum nú svo, að ég hafi enga löngun til að fara á vcðreiðarnar í Belmont á mánu- daginn“. Marcia hló einungis að honum. „Ég tek afsökun gilda, ef þú færð barn fyrir þann tíma, annars ekki“. „Ég hef aldrci á ævi minni horft á kappreiðar“, sagði hann. „Þá er tími til kominn að þú gerir það. Ó, Fergus, þú hefur farið svo mik- ils á mis. Láttu mig nú sýna þér, hvem- ig hægt er að skemmta sér verulega vcl! Við borðum þar, og ég hef með mér fína, þýzka kíkinn hans pabba handa þér — og þú kemst fljótt að raun um, hve spennandi þetta cr. Ég ábyrgist, að þú skemmtir þér prýðilega. Það er ekki hxgt annað“. „Ég er ef til vill ómóttækilegri fyrir spenningi en ég lít út fyrir að vera“, sagði hann dálítið kaldranalega. Hún tyllti sér á tá og kyssti hann á munninn. Það var henni líkt. Henni var aveg sama, þótt fólk kæmi að þcim og sæi hana gera þetta. Hún var ger- sneydd allri feimni. „Ertu ómóttækilegur ennþá?“ spurði hún hlæjandi, þegar hann þrýsti henni að sér. „Óvætturinn þinn!“ sagði hann og kyssti hana. „Spítalinn er þarna langt í austri", sagði hann og benti þangað. „Spítalinn!" Hún hló aftur. „Þú ert undarlegur, Fergus. Geturðu aldrei hætt að hugsa um þennan spítala? Heldur þú, að mig langi til að hugsa um hann í kvöld?“ „Nei, ég þykist vita, að þig langi ekki til þess“. Hann leit niður á and- lit hennar og hann gat ekki orðið reið- ur henni. Hún skildi auðvitað ekki, hve þessi stóri spítali, þessi iðandi heimur sjúkra, þeirra, sem voru á batavegi og þeirra, sem voru að deyja, var nátengd- ur honum. Þetta átti að vcra skemmtikvöld í tilefni af því, að skrautlegasti þakgarð- ur í Manhattan var opnaður. „Það er eitthvað varið í þessa hljóm- sveit, drengur minn“, sagði hún, þegar aftur heyrðist í hljómsveitinni. „Viltu dansa?“ „Rétt bráðum. Mér finnst svo yndis- legt héma, en þér?“ „Alltof dásamlegt", sagði hann. Fergusi fannst það fíflaskapur, að hann var enn ekki búinn að dansa nema nokkur spor við Marciu, þegar einhver ungi maðurinn kom og bauð henni í dans. En hún sagði, að það væri bara af því, að það væri í fyrsta skipti í vet- ur, sem hún tæki þátt í slíkum skemmt- unum. Annars myndi hún ekki vera svona eftirsótt. Og hún gerði sér enga von um, að áframhald yrði á því. „Og auk þess“, bætti hún við hugs- 3B HBIMILI3RITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.