Heimilisritið - 01.10.1953, Side 3

Heimilisritið - 01.10.1953, Side 3
HEIMILISRITIÐ OKTÓBER 11. ÁRGANGUR 1953 ■ Safarík smásaga — Míríam Eftir BÁRU AÐALSTEINSDÓTTUR ÉG REYNDI að aðvara hann, en hann heyrði ekki til mín, o<: það sem var verst, hann virtist ekki sjá mig heldur. Ég hafði það á tilfinningunni, að ég væri ekki til, að ég væri bara loft fyrir öllum nema mér sjálfum. Auð- vitað vissi ég að ég var dauður, það er að segja líkami minn, en sál mín lifði, og ég gat talað, heyrt og séð allt, sem fram fór í kringum mig. Ég var svo létt- ur, og að sumu leyti leið mér vel, ef ég bara gæti nú gleymt Míríam. En það gat ég ekki, og ég vissi, að ég mundi aldrei fá fiáð fyrr en ég gæti komið með- bræðrum mínum til að' skilja, að Míríam var ekki raunveruleg kona, en bera hið duttlungafulla afl myrkursins, sem birtist manni í töfrandi konulíki. Ég, vesæll einfeldningur, hélt hún væri góð og saklaus stúlka, þar sem hún kom gangandi til mín eitt kvöld út úr myrkum skóginum. Eg var á ferðalagi og hafði tjaldað í útjarðri skógar eins, og hugðist liafa náttstað þar og halda svo áfram daginn eftir. Ég átti að mæta vini mínum á þessum slóðum, og ætluðum við svo að halda ferðinni áfram og kanna óbyggðir landsins. Ég hafði rétt kveikt bál, og ætlaði að sitja um stund við bál- ið áður en ég legðist til svefns. Ég hélt mig væri að dreyma, þegar ég sá stúlkuna, sem stóð hinum megin við eldinn og liorfði á mig. Hún var há og grönn með svart hár, sem sló bláum blæ á við skin eldsins. Augun virtust svört og tindruðu eins og stjörn- 1

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.