Heimilisritið - 01.10.1953, Blaðsíða 11
að gera ai' liinum allt of löngu
handleggjuni sínum, og það kom
iðulega fyrir, að röddin brast og
skipti úr skrækrómi í ráma
bassai'ödd — eins og nú, þegar
hann spurði brautarþjóninn í
fimmta skipti, hvenær lestin frá
Redcove kæmi.
úíaðurinn yppti öxlum.
„Það er ekki gott að segja,
hún átti að vera komin fyrir
fimm mínútum“.
Xikulás eldroðnaði (honum
farmst eins og maðurinn hefði
glott — en það var kannske mis-
skilningur). Til þess að breiða
yfir vandræðasvipinn leit hann
lengi og hugsandi á armbandsúr-
ið > 1 tt — og því næst á stöðvar-
klukkuna, hristi höfuðið og tók
vcskið sitt upp úr brjóstvasan-
um. Hann opnaði það þungt
hugsandi og leit út fyrir að verða
hissa-, þegar hann leit á nvja
scðlabúntið, sem ljómaði við
lionum.
ÞESSIR seðlar voru mánað-
arlaun hans. Fyrstu peningarnir,
sem Nikulás Gravson hafði unn-
ið sér inn. Er hann daginn áður
hafði fengið þá greidda hjá gjald-
keranum í bankanum þar sem
hann starfaði — fyrst um sinn
sem snúningapiltur — hafði
hann verið kominn á fremsta
hlunn með að reka upp fagnað-
OKTÓBER, 1953
aróp. En í stað þess hafði liann
roðnað og sagt: „Þakka kærlega
fyrir“.
Og gjaldkerinn hafði brosað
vingjarnlega og sagt: „Hvernig
er þá að fá borguð launin sín í
fyrsta sinn?“
„Stórkostlegt!“ hafði Nikulás
Grayson sagt.
„Og hvað ætlið þér svo að
gera við peningana?“ hafði gjald-
kerinn spurt.
Og Nikulás hafði roðnað enn-
þá meira og stamað: „Eg — ég
ætla að hitta nokkurn. Stúlku
— reyndar. Það er loforð, sem
ég þarf að halda, nefnilega. Hún
kemur með lestinni“.
En nú varð lestin að fara að
koma! Vonandi hafði ekkert
komið fyrr. Það var svo oft, sem
fréttist um járnbrautarslys. Alls
ekki svo sjaldgæft.
I þessu bili fór fólk að streyma
út á stöðvarpa'llinn, og langt í
burtu heyrðist til járnbrautar-
lestar ...
Nú rann lestin inn á stöðina.
Fólk hló og masaði og ýtti við
honum.
Nikulás tyllti sér á tær. Hugs-
ið okkur, ef hún — ef hún færi
fram hjá honum, án þess að
hann sæi hana, því hún var svo
lítil. Eða ef hún væri nú alls ekki
með lestinni! Ivannske hefði eitt-
hvað komið fyrir á siðustu
9