Heimilisritið - 01.10.1953, Page 37

Heimilisritið - 01.10.1953, Page 37
Makka- var orðið svo gjarnt á að skella hurðum, ekki fyrr en þetta með barnið . . . Barnið? Frú Stevens fékk grun um mikið vandamál. j.Ja hérna, manni er raun- verulega farið að förlast; ég hef ekki einu sinni boðið yður sæti“, sagði hún afsakandi. „Ivomið þér inn í dagstofuna; ég ætla að koma með kaffisopa handa okk- ur.------Eg á nýbakaða van- illukransa“, flýtti hún sér að bæta \úð, þegar frú Mirror fór að malda í móinn. „Setjist þér nú þarna í stóra hægindastólinn og látið fara reglulega vel um yður. Eg kem alveg undir eins!“ Og' síðustu orðin sagði hún sönn, því áður en skyndilegt trúnaðartraust frú Mirrors var farið að dofna stóðu tveir rjúk- andi kaffibollar á borðum. „Jæja, ég greip víst fram í fyrir yður áðan“, sagði frú Stev- ens, „en það er víst satt, sem þér segið, það er fvrst í seinni tíð . . ,Já, við Makki — það er orð- ið æði langt síðan við kynnt- umst. .. þér hljótið að vita það“. Finna mátti sneið í þessum orð- um, en frú Stevens hristi höfuð- ið undrandi á svip; hvaðan hefði hún átt að vita það? Og hvað um það, þau voru uppi í miðri tuttugustu öldinni. „En svo giftumst við, af því okkur langaði til að eignast barn, og nú er svo komið, að við rífumst statt og stöðugt . ..“ Rödd hennar brast lítið eitt. Frú Stevens þagði um stund, svo hélt hún varlega áfram: „Maðurinn yðar er kannske elcki elskur að börnum?“ „Elskur!“ hrópaði frú Mirror upp yfir sig. „Hann er alveg vit- laus í börn. Hann kemur ekki svo heim úr vinnunni, að' liann sé ekki með bækur um barna- hjúkrun og barnauppeldi. — Um daginn varð ég að búa til velling úr barnamjöli handa honum, af því að liann langaði til að prófa, hvernig hann væri á bragðið. Og allt, sem ég geri, er kolvitlaust. Barnafötin, sem ég hef setið yfir langt fram á nótt, fárast liann vfir að séu ekki nógu falleg og nýtízkuleg. Og í morgun sleppti hann sér alveg yfir því, að mamma hafði gefið mér speldi til þess að styrkja bakið á barn- inu með. Hann sagði, að ef hann léti mig fá yfirráðin yfir barn- inu, hlyti það að enda með því, að barnið yrði vanskapað!“ Frú Mirror kjökraði án þess að reyna að dylja tárin, en frú Stevens reyndi árangurslaust að lnigga hana. „Og ég gekk sjálf með svona speldi, þegar ég var lítil“, sagði frú Mirror með ekka .. . OKTÓBER, 1953 35

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.