Heimilisritið - 01.10.1953, Page 50

Heimilisritið - 01.10.1953, Page 50
aðalatriðið vœri ekki dýnan, heldur pokinn utan uni hana. Næsta skrefið', sem Henry tók, var svo það, að hann fór að kynna sér andlitsgervi og til- búning þeirra. Hann reyndi ýms gervi á sér til þess að gera sig torkennilegan, og að lokum var hann ánægður með svart og mik- ið alskegg, scin á þeim tímum var síður en svo fágætt karl- mannsskraut. Henrv var venjulega vandlega rakaður, og hann var þ\ í alveg óþekkjanlegur með skeggið, Irreytta hárgreiðslu, ný föt með öðru sniði en hann var vanur að nota og auk þess hafði hann tamið sér breytta rödd og fram- komu. Þegar hann þóttist orðinn ör- uggur í þessu nýja hlutverki sínu, tók hann að lesá auglýs- ingar dagblaðanna um atvinnu- tilHoð. Það leið ekki á löngu þar til hann sá auglýsta stöðu við ]>rentsmiðju í Xorthampton, senr hann sótti um. Hann var beðinn um að koma til viðtals. Nú reið á, að hann væri hinu nýja hlutverki vaxinn. Hann fór til Northampton í dul- argervi sínu undir nafninu Henrv Sanders — og fékk stöðuna. Hann leigði sér herbergi í Northampton og tók að ferðast fyrir hið nýja firma. Hann liélt samt áfram tilveru sinni sem Henry Jones frá Liver- pool. Við húsfrevju sína í Liver- pool lét hann orð falla á þá leið, að því miður fengi hann sjaldan að sofa á nýju dýnunni, því að íyrirtæki hans hefði stækkað söluumdæmi hans, svo að hann yrði að selja í borgum, sem væru svo langt í burtu, að hann yrði iðulega að gista þar. Og húsráð- andanum í Northampton sagði hann, að liann ætti systur í Birmingham, sem hann væri oft vanur að vera hjá um helgar. Nokkur tími leið, og tvífara- tilvera Henrys gekk að óskum. Mary Spicer grunaði ekkert og tók sögu hans um stærra sölu- umdæmi sem góða oggilda vöru, þegar hann afsakaði hvað hann heimsækti hana orðið sjahlan. Og auk þess var hann farinn að vera blíðari og ástúðlegri við hana en áður, svo að von henn- ar um hjónaband efldist og átti sinn þátt í því að vísa á bug allri tortryggni í hans garð. Svo eitt sinn sagði hann henni, að hann yrði að fara í mjög langa söluferð. Og þegar hann loks kom aftur, eftir lengTÍ tíma en frú Spicer hafði látið sér til hug- ar koma, var hann í dularbún- ingi þeim, sem liann notaði er hann var Henry Sander. Mary Spicer var sannarlega 48 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.