Heimilisritið - 01.10.1953, Side 58

Heimilisritið - 01.10.1953, Side 58
f------------------------ Frambaldssaga ÓGIFT HJÓN GREIG V.------------------ (Kári liefur tjáð Katrínu ást sína, en þótt hún elski hann vill hún fvrst vita um samband hans við Klöru). ,,'Eg veit, Kári, að það er ó- gaman að tala um Klöru, en við verðurn að gera það. Þegar við byrjuðum á þessu — þessu starfi saman, sagðirðu mér frá henni. Þú sagðist elska hana og aetla að kvongast henni.“ ,,Ég hélt að ég elskaði hana,“ sagði hann, ,,en nú veit ég, að ég elskaði hana aldrei í raun og veru, ekki eins og ég elska þig. Tilfinningar mínar í hennar garð eru eins og að horfa í dauft tungl- skinið eftir að glóandi sólin er setzt. Allar aðrar konur í heimi blikna og fölna í samanburði við þig, Katrín. Þú ert sólin; þú lokk- ar augu manna, sjálfar sálir þeirra. . . . En ég skammast mín gagnvart hermi. Mér finnst ég hafa svikið hana. Reyndar var ekkert fasbmælum bundið um hjónaband okkar á milli, en það ------------------------------/ er lítil afsökun. Eg neyðist til að skrifa henni, en það veit sá, sem allt veit, að það verður erfitt fyr- ir mig að gefa henni fullnægjandi skýringar. Hún mun hata mig, og hún hefur fulla ástæðu til þess.“ Hún losaði sig úr örmum hans. ,,Kári, hvernig veiztu, að þú elskar mig, en ekki hana ? Ef þú nú sæir hana aftur?“ spurði hún ,.Ég sver, að það myndi ekki gera neinn mismun,“ sagði hann. ,,Ö, Katrín, heldurðu að ég sé svo mikill fáráðlingur, að ég finni ekki mínar eigin kenndir ? Ég hélt aðeins, að ég elskaði hana, segi ég. Hún var svo frábrugðin öllum öðrum stúlkum, sem ég hafði kynnzt, svo björt, svo fal- leg, svo — æ, það er bjánalegt orð í munni — svo góð. Flestar konur, sem ég hafði kynnzt á flækingi mínum um heiminn, konur, sem ég hafði kynnzt í Ástralíu, konur, sem ég kynntist í hafnarborgunum, meðan ég var 56 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.