Heimilisritið - 01.10.1953, Page 60

Heimilisritið - 01.10.1953, Page 60
henni fyrst. Þú verður að vita það fyrir víst, að það er ég, en ekki hún, sem hjarta þitt þráir, aðeins ég að eilífu. Þú verður að losa líf þitt við afturgöngu gamallar ást- ar, áður en þú kemur til mín. Þú verður að koma til mín hreinn.“ Hann sleppti henni skyndilega, svo skyndilega, að hún var naerri dottin. ,,Allt í lagi,“ sagði hann. ,,£g skal skrifa henni í kvöld. Komdu. Það er farið að skyggja, og það eru gestir í kvöldmat." KLARA var eins og á nálum þennan dag. Hún hafði skrifað Kára og látið hann vita, að hann mætti eiga von á sér, en hann hafði ekkert látið heyra frá sér. Hún vissi ekki, að faðir hennar hafði gleymt bréfinu í vasa sín- um, og það hafði því aldrei farið í póstinn. Kára var því ókunn- ugt um, að hún dveldi hjá Rawl- tonfólkinu og var væntanleg til Hortonsfjölskyldunnar í kvöld- boð. Hún fann það líka á sér, að þótt þau hefðu haft reglulegt bréfasamband sín á milli, var ekki allt eins og það átti að vera. Hún fann það á bréfum hans. — Tók leitin að erfðaskránni svo hug hans allan ? Fannst honum að maður, sem stæði uppi alger- lega félaus, hefði engan rétt á að biðja hennar ? Hún gekk ein út í skóginn og vorið. Hún taldi sér trú um, að hún vildi vera í einrúmi með hugsanir sínar, en í rauninni var hún að forðast Pétur. Það var síður en svo að henni geðjaðist ekki að honum. Hann féll henní betur í geð en nokkur annar karl- maður, að Kára undanskildum. En það lá við að hún fyriryrði sig fyrir það, hversu aðdáun Pét- urs á henni var henni kær. Auð- vitað átti enginn að eiga aðgang að hjarta hennar nerna Kári. Pétur hafði farið í ökuför með hana um morguninn og sýnt henni það markverðasta í ná- grenninu. Hann hafði sagt henni, hversu dásamlegt væri að hitta hana aftur eftir öll þessi ár. ,,Þú varst bara barn þá,“ sagði hann hlýrri, blæauðugri röddu, ,,en veiztu það, Klara, að ég hef aldrei gleymt þér. Þegar ég hef kynnzt öðrum stúlkum og fund- izt þær hugþekkar, hefur mér alltaf dottið þú í hug, og sú spurning hefur vaknað, hvernig þú myndir vera orðin. Og nú, þegar ég sé þig, ertu fallegri en ég gat hugsað mér.“ Hún roðnaði — fékk á sig lit rósanna við garðshliðið heima, fannst honum. ,,Það er fallegt af þér að segja þetta, Pétur. Ég — ég hef oft 58 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.