Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.12.2013, Page 6

Fréttatíminn - 13.12.2013, Page 6
Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is Jólahangikjötið frá Stað í Reykhólasveit er eftirsótt og sumum liggur svo á að sækja hina gómsætu vöru að þeir skreppa vestur á flugvél. Mynd reykhólar.is Faxafeni 5, Reykjavík • Sími 588 8477 Dalsbraut 1, Akureyri • Sími: 558 1100 Opi› virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 11-16 og sunnudaga frá kl. 13-17 TIMEOUT Jólatilboð kr. 322.980 með skammeli Jól 20 13 Þín stund Þinn staður TIMEOUT sTóllInn Hannaður með fagurfræði og þægindi að leiðarljósi. Hönnuður: Jahn Aamodt T IMEOUT Hægindastóll  Reykhólasveit eftiRsótt lostæti Sóttu jólahangikjötið á flugvél Mikil vinnutörn er í Reykskemmunni Stað um þessar mundir að pakka og ganga frá pöntunum til sendingar. „Það eru allir í fjölskyldunni í þessu,“ segir Eiríkur Snæbjörnsson, bóndi á Stað í Reyk- hólasveit, í viðtali vefinn reykhólar.is. „Núna komu menn meira að segja á lítilli einkaflugvél á Reyk- hóla gagngert til að sækja jólahangikjötið enda er framleiðslan mjög eftirsótt. Já, framleiðslan og sal- an hafa farið jafnt og þétt upp á við með árunum,“ segir Eiríkur. Um er að ræða lambakjöt og sauðakjöt, rúllu- pylsur og bjúgu, auk þess sem Staðarfólk veiðir rauðmaga á vorin og reykir hann. Reykingin er bæði taðreyking og birkireyking. „Búendur á Stað á Reykjanesi í Reykhólasveit eru hjónin Sigfríður Magnúsdóttir og Eiríkur Snæ- björnsson ásamt dóttur sinni og tengdasyni, Re- bekku Eiríksdóttur og Kristjáni Þór Ebenezers- syni frá Reykhólum, og ungum dætrum þeirra, Védísi Fríðu og Anítu Hönnu. Þau standa öll í sam- einingu að Reykskemmunni,“ segir enn fremur á Reykhólavefnum. „Það var um aldamótin sem þau byrjuðu á reyk- ingunni og hafa verið í samtökunum Beint frá býli og Veisla að vestan frá upphafi. Þau senda hvert á land sem er, þó að núna hafi legið svo mikið á að krækja í jólahangikjötið frá Reykskemmunni Stað, að komið var á flugvél til að sækja það.“ R ússnesk farþegaþota af gerð-inni Sukhoi SuperJet-100 sem brotlenti á Keflavíkurflugvelli í júlí í sumar er enn í flugskýli við Keflavíkurflugvöll. Tugir rússneskra flugvirkja vinna við vélina og er stefnt að því að viðgerðum ljúki og vélinni verði flogið af landi brott fyrir áramót. Vélin hafði verið við æfingaflug á vegum framleiðandans í því skyni að fá rýmkaðar heimildir hennar til flug- taks og lendingar við erfiðar aðstæð- ur. Þegar vélin kom inn til lendingar eitt skiptið, nánast fulllestuð og með annan hreyfilinn óvirkan af ásettu ráði, fóru hjól hennar ekki niður og var henni því magalent. Hún rann eftir flugbrautinni en stöðvaðist utan hennar. Fimm manns voru um borð og sluppu flestir ómeiddir en einn ökklabrotnaði. Vélin var síðan færð inn flugskýli 8805, stóra brúna byggingu í eigu Isavia sem sést vel þegar Reykjanes- braut er ekin í átt að Leifsstöð. Þar hefur hún verið síðan, í rúma fimm mánuði. Samkvæmt upplýsingum Fréttatímans þurfti að bíða alllengi eftir varahlutum en marga þeirra þurfti að sérframleiða. Viðgerðin hefur verið umfangsmikil og eftir því kostnaðarsöm en áætlanir um kostnað liggja ekki á lausu. Skipta hefur þurft um hreyfla, hreyflafestingar og allan botn vélarinnar fyrir neðan væng. Ragnar Guðmundsson, stjórnandi rannsóknar á flugslysinu hjá Rann- sóknarnefnd samgönguslysa, sagðist ekki geta upplýst um niðurstöður rannsóknar á slysinu. Hann stað- festi að þarna hefði verið um að ræða stærsta flugslys sem svo stór farþega- þota hefur orðið fyrir hér á landi. Sigþór Kristinn Skúlason, forstjóri Airport Associates á Keflavíkurflug- velli, sagði að fyrirtæki sitt hefði veitt Sukhoi ýmsa þjónustu vegna við- gerðarinnar en útbúa þurfti viðgerð- araðstöðu í flugskýlinu sem er alla jafnan rafmagnslaust og óupphitað. Hins vegar hefur Sukhoi flutt alla flugvirkja og tæknimenn að utan til þess að vinna við viðgerðirnar og hafa íslenskir flugvirkjar ekki komið að verkefninu. Pétur Gunnarsson petur@frettatiminn.is  flugslys Rússnesk þota sem bRotlenti í sumaR eR enn í keflavík Tugir rússneskra flug- virkja á fullu í viðgerðum Talsverð umsvif eru enn í gangi á Keflavíkurflugvelli vegna viðgerðar á farþegaþotu sem brotlenti á þar í sumar. Stefnt er að því að koma þotunni í loftið og af landi brott fyrir áramót. Sukhoi Superjet 100 tekur allt að 95 farþega. Ekki fékkst leyfi til að mynda vélina sem brotlenti á Keflavíkurflugvelli og er enn til viðgerðar en þessi mynd er fengin af heimasíðu framleiðandans. Ljósmynd/Sukhoi Ragnar Guð- mundsson ... staðfesti að þarna hefði verið um að ræða stærsta flugslys sem svo stór farþegaþota hefur orðið fyrir hér á landi. 6 fréttir Helgin 13.-15. desember 2013
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.