Fréttatíminn - 13.12.2013, Side 20
Íslensku jólasveinarnir komu upphaflega til að hræða börn
Hrædd um að jólasveinninn stigi ofan á sig
S tóri dagurinn var í gær – fyrsti dagurinn sem dóttir mín fékk gjöf frá jólasveininum í skóinn.
Satt að segja var það fyrir einskæra
tilviljun að ég mundi eftir að segja
henni að setja skóinn út í glugga því
ég var algjörlega ómeðvituð um hvaða
dag Stekkjarstaur kæmi til byggða,
fyrirmyndarmóðirin ég. Þökk
sé myndum af annarra manna
börnum á Facebook gat ég
rétt fyrir háttinn sagt henni
söguna af jólasveinunum
sem gæfu góðum börnum í
skóinn.
Henni fannst þetta vitan-
lega mjög undarlegt til að
byrja með og óttaðist mest
að jólasveinninn myndi stíga
ofan á hana í rúminu þegar
hann kæmi í myrkrinu en
ég sagði henni að það væri
ekkert að óttast. Þegar kom
að því að velja skó vildi hún helst
setja flottustu skóna sína í gluggann,
bleika pallíettuskó, en þar sem þeir
voru hjá ömmu hennar gekk það
ekki. Ég harðbannaði henni að setja
kuldaskóna sína út í glugga því þeir
væru skítugir og hún þyrfti að fara
í þeim á leikskólann daginn eftir og
því væri ómögulegt að hafa þá úti í
glugga. Við komumst að þeirri sam-
eiginlegu niðurstöðu að segja inniskó
með mynd af Dóru landkönnuði í
gluggann. Vitanlega ætlaði barnið
að setja báða skóna í gluggann því
skór koma í pörum en mér tókst að
sannfæra hana um að það væri nóg
að setja bara annan skóinn. Svona
hversdags, eða hverskvölds, halla ég
hurðinni hjá henni þegar hún fer að
sofa en í þetta skiptið æpti hún þegar
ég gerði mig líklega til að halla aftur.
„Það verður að vera opið. Annars
kemst jólasveinninn ekki inn!“ sagði
hún áhyggjufull. Eins og ekkert væri
eðlilegra ítrekaði ég að jólasveinninn
væri bara fyrir utan og teygði hendina
inn um gluggann til að setja gjöf í
skóinn. En dyrnar urðu samt að vera
opnar.
Það fyrsta sem blessað barnið sagði
þegar það vaknaði í gærmorgun var:
„Er jólasveinninn búinn að koma?“ Ég
hafði vitanlega ekki hugmynd um það
enda ekki búin að kíkja út í glugga og
sagði henni að fara og athuga málið.
Hún fór hikandi að glugganum en tók
brátt gleði sína og tilkynnti hátt og
snjallt hvað jólasveinninn hefði komið
með: „Mandarínu!“ En Stekkjarstaur
hafði ekki komið með neina venjulega
mandarínu heldur hafði hann skrifaði
nafnið hennar Lovísu á mandarínuna
og teiknað á hana með svörtum túss-
penna. Við mæðgur sammæltumst um
að það mætti ekki skrifa á mandarínur
en jólasveinninn fékk undanþágu hjá
dóttur minni „því hann er svo snið-
ugur.“ Þegar við komum á leikskólann
hvíslaði hún spennt að mér að hún
ætlaði að segja leikskólakennaranum
á hennar deild að jólasveinninn hefði
gefið henni mandarínu sem hann var
búinn að skrifa á.
En auðvitað er fátt rökréttara en að
óttast að einhver jólasveinn hrein-
lega stígi á mann þegar hann kemur
að heimilinu um hánótt og auðvitað
frekar undarlegt að setja bara annan
skóinn í gluggann. Börn hugsa nefni-
lega oft svo rökrétt. Þannig heyrði ég
af barni sem náði ekki að festa svefn
af ótta við þennan ókunnuga mann
sem ætlaði að koma um nóttina þegar
barnið væri sofnað. Það hljómar
nefnilega svolítið óhugnarlega og á
endanum þurftu foreldrar barnsins að
telja því trú um að jólasveinnin væri
ekki til svo barnið gæti sofið rólegt á
nóttunni. Það er kannski heldur ekki
að undra því íslensku jólasveinarnir
voru fyrst kynntir til sögunnar til að
hræða börn, líkt og foreldrar þeirra
Grýla, Leppalúði svo og Jólaköttur-
inn. En í dag er markmið þeirra sem
betur fer að gleðja börnin og til að
gleðja jólasveinana ætlum við Lovísa
að sækja bleiku pallíettuskóna til
ömmu hennar áður en næsti jóla-
sveinn kemur.
Erla
Hlynsdóttir
erla@
frettatiminn.is
Sjónarhóll
Sími 570 2400 · oryggi.is
Stöndum vaktina allan sólarhringinn
Vefverslun með öryggisvörur á oryggi.is
Kertaljós og skreytingar þarf
að umgangast með varúð
Tryggið eldvarnir heimilisins, reykskynjarar, slökkvitæki
og eldvarnarpakkar í miklu úrvali.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
23
24
7
Eldvarnarpakki 1
Tilboðsverð í vefverslun
14.668 kr.
Listaverð 22.741 kr.
Tilvalið í bílinn eða
ferðavagninn
Eldvarnarpakki 2
Tilboðsverð í vefverslun
20.937 kr.
Listaverð 32.460 kr.
Eldvarnarpakki 3
Tilboðsverð í vefverslun
13.398 kr.
Listaverð 20.772 kr.
Eldvarnarpakki 4
Tilboðsverð í vefverslun
7.205 kr.
Listaverð 11.171 kr.
Eldvarnarpakki 5
Tilboðsverð í vefverslun
14.177 kr.
Listaverð 21.980 kr.
Vikan í tölum
126
milljóna hagnaður var á rekstri
framleiðslufyrirtækisins
Truenorth í fyrra og þrefaldað-
ist frá fyrra ári. Fyrirtækið sá
um tökur á fjórum Hollywood-
myndum hér á landi í fyrra.
15
prósentustiga aukning
varð á sölu jólabjórs í
nóvember miðað við
sama mánuð í fyrra. 307
þúsund lítrar seldust í ár
en 267 þúsund í fyrra.
4,8
milljarðar króna
er heildar-
söluverðmæti
skyrs í verslunum
á Norðurlöndunum
í ár. Útflutnings-
tekjur af skyri
verða ríflega 500
milljónir króna.
1
sólarhringur leið
frá því Pálma Þór
Sævarssyni var
sagt upp störfum
sem þjálfari úrvals-
deildarliðs Skalla-
gríms í körfuknatt-
leik þar til hann var
endurráðinn.
20 viðhorf Helgin 13.-15. desember 2013