Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.12.2013, Page 25

Fréttatíminn - 13.12.2013, Page 25
að yfirvöld mundu grípa inn í. Yfirlýsing seðlabanka- stjórans var þess vegna stórt skref og margir sögðu: „Ok, þetta er þá löglegt.“ Ég held samt að ennþá sé þetta bóla og að menn séu að aðallega að kaupa þetta af því að þetta er nýtt og mikið í fjölmiðlum.“ Í upphafi ársins kostaði bitcoin um 15 dollara en eftir yfirlýsingu seðlabankastjórans þaut verðið upp og náði hæst í um 1200 dollara. Fyrir skömmu síðan bárust hins vegar fréttir frá Kína um að stjórnvöld þar í landi ætluðu að beita sér gegn viðskiptum með bitcoin. Um leið dalaði markaðurinn og stendur í um 900 dollurum þegar þetta er skrifað og er það um tífalt það verð sem Geir greiddi fyrir brúðkaupsaf- mælisgjöfina í júní. Það eru tvær leiðir til þess að eignast bitcoin. Önnur er sú að kaupa hann á markaði fyrir venjulega peninga en hin er sú að gerast þátttakandi í netinu sem framleiðir þessa peninga eða „grefur þá upp“. Svipað net og á torrent-síðum Bitcoin er búinn til af notendum á internetinu með ókeypis og opnum hugbúnaði, sem er byggður upp „svipaðri peer-to-peer“ hugsun og torrent-síður. Hvaða tölvueigandi sem er getur hlaðið niður og notað til þess að afla nýrra peninga. Nýr peningur verður til þegar forritinu í tölvu notandans tekst að leysa ákveðna gríðarlega flókna reikniþraut. Um leið og ein þraut er leyst eykst sjálfkrafa sú tölvuvinna sem þarf að vera að baki hverjum nýjum peningi. Þessar stigvaxandi kröfur eiga að hægja á framleiðslu nýrra peninga að tryggja að allt sé fyrirsjáanlegt og takmarkað magn af bitcoin í umferð. Af því að reikniþrautin þyngist með hverjum pen- ingi sem bætist við hafa kröfurnar um vinnslugetu tölva aukist hröðum skrefum. Sá sem hlóð niður hug- búnaðinum í fartölvu sína um það leyti sem bitcoin varð til árið 2009 hefði auðveldlega getað leyst fyrstu þrautirnar og eignast pening með fartölvunni sinni en í dag eru mjög litlar líkur á því að venjuleg fartölva hitti á rétta lausn við reikniþraut og geti búið til nýjan pening. Það er þó alltaf möguleiki. Afkastageta á við 500 stærstu ofurtölvur heimsins En afkastageta kerfisins eykst ekki aðeins vegna þess að notendum sé stöðugt að fjölga heldur er skýringin fyrst og fremst sú að sífellt eru öflugri og öflugri tölvur að tengjast þessu neti. Nú er talið að sameinuð vinnslugeta þeirra tölvunotenda sem tengdir eru bitcoin samsvari nú fimm hundruð öflugustu ofurtölv- um í heiminum, samkvæmt því sem kom fram í The Economist nýlega. Þegar tölvan hefur fundið lausn á reikniþrautinni og nýr peningur er orðinn til er hann geymdur í sér- stöku stafrænu veski notandans sem minnir á net- banka. Þegar peningur er notaður í viðskiptum til að færa verðmæti milli manna er sendingin dulkóðuð og fær rafræna undirskrift og rafræna vottun. Orðið gjaldmiðilll í viðskiptum Bitcoin-kerfið geymir síðan alla peninga sem til hafa orðið og allar færslur sem gerðar hafa verið. Þessar færslur eru allar óafturkræfar og er staðhæft að sá sem vill falsa bitcoin eða bitcoin-færslur þurfi að hafa yfir að ráða tölvukerfi sem hefur meiri vinnslugetu en samanlögð vinnslugeta allra bitcoin-notenda. Notendur android-síma geta fengið sér App sem hægt er að nota til þess að senda bitcoin í aðra síma á nokkrum mínútum og í október var fyrsti hraðbank- inn fyrir bitcoin notendur tekinn í notkun í Vancouver í Kanada en þar geta notendur Android-síma hlaðið bitcoin inn í stafræna veskið sitt. Fjölmörg fyrir- tæki eru farin að taka við bitcoin og hægt er að nota hann sem í viðskiptum með varning eins og bækur, tölvuleiki og fjölmargt fleira. Samfélagsmiðillinn Reddit tekur við greiðslum í bitcoin og það gerir líka WordPress, vinsælasta vefumsjónarkerfi í heimi og fjölmargir aðrir. Eins eru komin á fót fyrirtæki sem kaupa bitcoin í skiptum fyrir gjaldmiðla á borð við dollara og evrur. Pétur Gunnarsson petur@frettatiminn.is Skeifunni 10, Reykjavík Hafnarstræti 91-93, Akureyri Hafnarstræti 2, Ísafirði Sími 540 2330 husgogn@penninn.is www.penninn.isHúsgögn ÍS LE N SK A /S IA .IS /P EN 6 69 22 1 2/ 13 DSWDSR Eames stólar Sígild hönnun frá 1950 TIlboð til áramóta: DSR 35.900 kr. 39.900 kr. DSW 49.400 kr. 54.900 kr. Opið laugardag kl. 11-16 sunnudag kl. 13-17 Ævintýri eins og þau gerast best! Grimmsystur · Úlfur í sauðargæru BÓKAÚTGÁFA SÍMI 588 6609 WWW.BOKABEITAN.IS Bókaflokkurinn í heild sinni komst á metsölulista Allir sem unna ævintýrum eiga eftir að elska þennan ævintýraráðgátubræðing! Ertu búinn að lesa fyrstu bókina? Frábærar myndskreytingar Hraðbanki fyrir bitcoin í Vancouver þar sem hægt er að hlaða bitcoin-inneign inn í Android-síma. Mynd/Getty Í þessari spjaldtölvu er hugbúnaður sem gerir viðskipta- vinum hvaða fyrirtækja sem er kleift að greiða fyrir vörur og þjónustu með bitcoin úr rafrænu seðlaveski í Android-síma. Mynd/Getty fréttaskýring 25 Helgin 13.-15. desember 2013
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.